 STÓRfrænkan GuruGuru
    <language>is</language>
KF-ÍH á Ólafsfjarðarvelli 20. ágúst 2011
      <description>Fjórði heimasigur KF í röðNú  um helgina tóku strákarnir í meistaraflokki KF á móti ÍH. Fyrirfram var  búist við nokkuð þægilegum leik fyrir heimamenn þrátt fyrir að Ingimar  og Kristján væru í leikbanni. Það virtist líka ætla að verða raunin því  okkar drengir komust í 3-0 eftir um klukkutíma leik. Þórður Birgisson  heldur áfram að skora og gerði sitt 8. mark á tímabilinu þegar hann kom  KF yfir á 33. mínútu. 2-0 var svo staðan eftir 33. mínútur þegar ÍH menn  skoruðu í eigið mark eftir hornspyrnu. Sigurbjörn skoraði svo sitt 4.  mark í sumar á 56. mínútu. ÍH menn komust reyndar inn í leikinn með  tveimur mörkum á 73. og 85. mínútu og var farið að fara um leikmenn og  áhorfendur. En sem betur fer komust þeir ekki nær okkar mönnum og fjórði  heimasigur KF í röð staðreynd.            Halldór markvörður KF var borinn út af vellinum rétt fyrir leikslok 2. deildinn hefur aldrei  verið eins jöfn og nú. Til marks um það eru níu lið sem eiga ennþá góðan  möguleika á að fara upp um deild þegar aðeins fjórir leikir eru eftir.  KF er með bestu markatöluna en er samt bara í 8. sæti, sem segir kannski  aðeins til um að okkar drengir hafa verið frekar óheppnir í mörgum  leikjum, þá sérstaklega í byrjun sumars.Fyrirliði KF, Milos Glogovac  skrifaði undir nýjan samnig eftir leikinn            Stöðuna í deildinni má sjá  hér að neðan, en það er alveg ljóst að ætli okkar strákar sér að fara  upp um deild þá mega þeir ekki misstíga sig í þeim fjórum leikjum sem  eftir eru, en þeir eiga eftir að spila við Reyni S (úti), Árborg  (heima), Tindastól (heima) og Hött (úti).Texti og tafla: Þorvaldur Þorsteinsson thorvald@vis.isMyndir:Guðný Ágústsdóttir</description>
KF-Völsungur 8. ágúst á Ólafsfjarðarvelli
      <description>Umfjöllun tekin af Fotbolti.net: KF sigraði Völsung í mögnuðum markaleik KF 7 - 4 Völsungur:1-0 Gabríel Reynisson2-0 Sigurbjörn Hafþórsson3-0 Þórður Birgisson4-0 Þórður Birgisson4-1 Arnþór Hermannsson4-2 Elfar Árni Aðalsteinsson5-2 Þórður Birgisson6-2 Gabríel Reynisson6-3 Bjarki Baldvinsson6-4 Sjálfsmark7-4 Halldór Logi HilmarssonKF tók á móti Völsung á Ólafsfirði í gærkvöldi, við hreint út sagt frábærar aðstæður, smá golu og frábærum Ólafsfjarðarvelli, sem hefur væntanlega sjaldan eða aldrei verið betri. KF vann fyrri leikinn á Húsvík 2-0 og Völsungar vildu væntanlega hefna fyrir þau úrslit.En það var ekki að sjá á þeirra leik í upphafi að þeir ætluðu sér það. Strax eftir hálftíma leik var staðan nefnilega orðin 4-0.Heimamenn byrjuðu leikinn að mikilli hörku og áttu þeir grænklæddu í miklum vandræðum með sóknarmenn heimamanna, þá sérstaklega Gabríel Reynisson og Þórð BirgissonÞað var einmitt Gabríel sem skoraði 1. mark heimamanna strax á sjöundu mínútu. Hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn gestanna frá Agnari Sveinssyni og var á undan Kjartani Páli, markmanni Völsunga, í boltann og renndi honum í autt markið.Heimamenn voru ekki lengi að bæta við öðru marki, því Kjartan fékk sendingu aftur, sem Þórður Birgisson elti og Kjartan hreinsaði frá en boltinn fór í Þórð og upp í loftið sem endaði með því að Sigurbjörn Hafþórsson skallaði boltann nánast á marklínu innfyrir mark gestanna og staðann orðinn 2-0 eftir 15 mínútur. Gestirnir virkuðu mjög sofandi og náðu lítið að skapa sér fram á við.Þórður Birgisson skoraði síðan sitt fyrsta mark þegar um 30 mín voru liðnar af leiknum, þá komst Þórður ein í gegn um vörn Völsunga, eftir að hafa hlaupið af sér varnarmenn Völsungs og setti boltann fram hjá Kjartani. Vörn gestana virkaði mjög óörugg í fyrrihálfleik, þó var Haukur Hinriksson að skila sínu ágætlega. Þórður Birgisson skoraði síðan sitt annað mark þegar 33 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan orðin 4-0.Áhorfendur á bandi heimamanna mjög sáttir við leik sinna manna enda ekki annað hægt.Gestirnir fengu þó smá von rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, þegar heimamenn gerðu sig seka um að missa boltann mjög aftarlega á miðsvæðinu, og náðu gestirnir að nýta sér það mjög vel og skoraði Arnþór Hermannsson gott mark fyrir gestina eftir laglega fyrirgjöf frá hægri kanti. Staðan sem sagt 4-1 í hálfleik.Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti. Því Elfar Aðalsteinson skoraði strax á 50. mínútu og Völsungar komnir inn í leikinn. Elfar fékk boltann vel fyrir utan markteig og hamraði boltanum í hægra hornið á marki KF alveg út við stöng. Mjög gott skott hjá Elfari.Heimamenn virtust vakna við markið og Þórður var ekki búinn að segja sitt síðasta og fullkomnaði þrennuna með marki á 65. mínútu. Þórður hamraði boltan viðstöðulaust í mark horn gestanna.Tæpum 10 mínútum síðar kom mark leiksins, þegar Gabríel Reynisson þvældi að því er virtist 4 eða 5 varnarmenn heimamanna áður en hann lagði boltann fram hjá Kjartani í marki gestanna.Þetta mark var hreint með ólíkindum, og hefðu fótbolta snillingarnir í útlöndum verið mjög stoltir af tilþrifum sem þessum.Staðan því orðin 6-2 og leikurinn nánast búinn, eða hvað. Húsvíkingar eru ekki þekktir fyrir að gefast upp þó að á móti blási. Bjarki Baldvinsson sem hafði komið inná sem varamaður skoraði 3 ja mark gestanna þegar um 3 mínútur lifðu af venjulegum leiktíma, markið kom eftir hornspyrnu og féll boltinn fyrir Bjarka eftir barning í víteteig heimamanna, sem gerði vil í að klára færið. Gestirnir minnkuðu svo muninn ennfrekar í 6-4 tveim mínútum síðar þegar Kristján Vilhjálmsson, varð fyrir því óláni að skora í eigið mark eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá gestunum. Von kviknaði því aftur hjá gestunum því viðbótartíminn var 5 mínútur.Sú von slokknaði reyndar á 93. mínútu þegar Halldór Logi skoraði 7 mark heimamanna eftir hornspyrnu, markið var nokkuð líkt því sem Bjarki Baldvinsson, hafði skorað nokkru áður fyrir gestina, boltinn datt niður eftir barning í teig gestanna og kláraði hann færið vel. Kjartan vildi reyndar meina að brotið hafi verið á sér en Bjarni Hrannar dómari var ekki á sama máli. Niðurstaðan því 7-4 í ótrúlegum fótboltaleik á Ólafsfirði.Heimamenn hafa nú skorað 16 mörk í þremur síðustu heimaleikjum sínum.Sjá má þessa umfjöllun hér á fotbolti.net</description>
Dalvík/Reynir-KF á Dalvíkurvelli  4. ágúst 2011
      <description>             Það var eftirvænting í loftinu þegar flautað var til leiks í  nágrannaslag Dalvíkur/Reynis og KF á fimmtudag. Fiskidagurinn mikli  framundan og fjöldi manns í bænum. Að auki var frítt inn á völlinn í  boði Vodafone og því þétt setinn bekkurinn og brekkurnar á  Dalvíkurvelli. Leikurinn gat ekki byrjað betur fyrir heimamenn því að  eftir aðeins 35 sekúndur hirti Bessi Víðisson boltann af varnarmanni KF  og skoraði laglegt mark.  Þetta kveikti í heimamönnum sem voru sprækari aðilinn framan af.  Smátt og smátt unnu KF sig inn í leikinn og fengu hornspyrnu eftir 22  mínútur. Hornspyrnan var vel tekin upp í sterkan norðanvindinn og sveif í  boga inn á markteig heimamanna  þar sem Milos Glogovac kom boltanum í  netið og staðan því orðin 1-1.  Leikurinn var fremur jafn það sem eftir lifði hálfleiks, KF lék  undan sterkum vindi en náði ekki að skapa sér mörg afgerandi færi en  náðu á stundum pressu á vörn heimamanna. Það var hins vegar  Dalvík/Reynir sem átti besta færið þegar Kristinn Þór Björnsson átti  gott skot utan teigs undir lok hálfleiksins, markvörður KF, Halldór  Ingvar Guðmundsson, varði vel en hélt ekki boltanum og mátti minnstu  muna að sóknarmenn heimamanna kæmust í boltann en KF hreinsaði frá á  síðustu stundu.   Síðari hálfleikur var hins vegar að mestu eign heimamanna en þá léku  þeir undan vindi og héldu uppi sterkri pressu á vörn KF sem gekk illa  að koma boltanum frá.  Dalvík/Reyni gekk þó illa að opna vörn heimamanna  en Kristinn Þór skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu sem mörgum  í stúkunni fannst vafasöm. Eftir hornpspyrnu endaði boltinn í stöng  KF-marksins, Markús Jónasson fylgdi vel á eftir og héldu margir að hann  hefði loksins skorað en þá fór boltinn í hliðarnetið. Markús skoraði  síðan mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.   Oft þegar lið liggja svona í sókn þá geta skyndisóknir andstæðinga  orðið skeinuhættar og á 80. mínútu áttu KF-menn eina slíka sem endaði  með því að boltinn small í stöng heimamanna og fór þá um marga í  stúkunni. Það var síðan á 88. mínútu sem að ísinn var brotinn. Eftir  pressu á varnarmenn KF þá hrökk boltinn til varamannsins Hilmars  Daníelssonar sem átti laglega stungusendingu á Bessa Víðisson sem kom  honum snyrtilega fram hjá markverði KF. Bessi fékk síðan krampa í  aftanvert lærið og þurfti að fara af velli undir áköfu lófaklappi  heimamanna.   Dómari leiksins bætti heilum 5 mínútum við vegna tafa og pressuðu KF  þá ákaft en vörn heimamanna hélt og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar  lokaflautið gall. Fimmti sigurleikur Dalvíkur/Reynis í röð og  fiskidagsgleðinni formlega startað. 1-0 Bessi Víðisson 1-1 Milos Glogovac 2-1 Bessi VíðissonKlemenz Bjarki Gunnarsson skrifar frá Dalvík                                                                                                                                                                                                                                                                     Dalvík/Reynir 2 - 1 KF Þessi umfjöllun er HÉR á Fotbolti.netGuðný Ágústsdóttir áhugaljósmyndari,tekur allar myndirnar á þessari síðu,smellið á myndirnar og farið beint inn í albúmið :-)</description>
KF-Hamar á Ólafsfjarðarvelli 27. júlí 2011
      <description>Frábær sigur hjá KF á toppliði Hamars      KF spilaði í gær við topplið Hamars í 2. deildinni. Skemmst er frá því  að segja að okkar drengir tóku Hvergerðinga í kennslustund og unnu  stærsta sigur sem KF hefur unnið, enda nýstofnað. Lokatölur urðu 5-0, en  staðan í hálfleik var orðinn 4-0. Sigurbjörn Hafþórsson kom okkar drengjum yfir strax á 22. mínútu og  hann var svo aftur á ferðinni 10 mínútum síðar. Vel að verki staðið hjá  Bjössa sem skoraði sín fyrstu mörk á þessu tímabili en vonandi ekki þau  síðustu. Gabríel skoraði svo á 39. mínútu eða 4 mínútum áður en Aggi  setti fjórða markið á Hvergerðingana. Leikurinn svo gott sem búinn í  hálfleik.       Kristján Vilhjálmsson bætti síðan við 5. markinu í síðari hálfleik og  strákarnir unnu eins og áður sagði flottan sigur á toppliði Hamars.       Seinni umferðin hefur farið mjög vel af stað hjá okkar drengjum, tveir sigrar og eitt jafntefli í 3 leikjum.             Næsti leikur er svo gegn Dalvík á fimmtudag eftir Verslunarmannahelgi,  þar sem okkar drengir halda vonandi áfram góðri siglingu. (texti:Þorvaldur Þorsteinsson) Myndir:Guðný ÁgústsdóttirOg veðrið var dásamlegt!!      </description>
"Á frívaktinni" á Sigló, 17. júní og sjómannadagurinn í Ólafsfirði, og fleiri viðburðir í júní 2011
      <description>        Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins á Siglufirði var haldin í fimmta sinn, og fjórða Frívaktin var í Bátahúsinu þann 25. júní.                            Hvert sinn eru nýjir gestasöngvarar sem gera það að verkum að tónleikarnir eru síbreytilegir. Nú voru það Helena Eyjólfsdóttir, gamalreynd og margfræg í bransanum og Björn Jörundur, af yngri kynslóð íslenskra söngvara, sem héldu uppi fjörinu, ásamt Gómum. Frábær skemmtun!Loksins, loksins fór Stórfrænkan og Sjóarinn á tónleika með Eyvør Páls, og það á Græna hattinum! Það þarf ekki að skrifa margar línur um þá tónleika, þetta var einfaldlega frábært kvöld :)Dásamleg listakona hún Eyvør PálsdóttirÞann 8. júní fór ég í siglingu í boði Norðursiglingarsem ætla að vera með hvalaskoðun héðan frá Ólafsfirði í allt sumar og Stórfrænkan ætlar svo sannarlega að fara aðra ferð, og vonandi verða hvalirnir í stuði og láta sjá sig :)Veðrið var nú ekkert sérstakt í þessari skemmtilegu ferð og enga sáum við hvalina, en mun skemmtilegra hefur verið að sigla í júlí, og á ég nú eftir að fara aðra ferð með þeim fljótlega :)Júnímánuður verður lengi í minnum hafður vegna kulda, sem hafði áhrif á skemmtiatriði, bæði á sjómannadag og 17. júní. Fólk var ekki eins mikið í bænum að fylgjast með eins og oft áður. Og það voru ekki margir sem komu út úr bílum sínum á bryggjunni að fylgjast með róðrinum.Sjómannadagsskemmtunin í Tjarnarborg var frábær eins og alltaf, góður matur,skemmtiatriði góð og Björn Jörundur var flottur!!En þeir sem klæddu sig almennilega á þjóðhátíðardaginn, skemmtu sér vel, svo ég tali nú ekki um ofurhugana sem fengu sér salibunu í vatnsrennibrautinni á 17. júní :)Svo er það nú knattspyrnan, ójá..... ég hef verið dugleg að fara á heimaleiki KF og æft mig í fótboltamyndatökum og er það mjög skemmtilegt! ... EN það er alltaf nóg að gera hjá Stórfrænkunni og vantar því oft tíma til að fara yfir allar þessar myndir sem eru teknar og koma þeim inn á síðuna !! Hér koma loksins fjögur albúm frá síðustu leikjum, Reynir Sandgerði, svo skrapp ég á Sauðárkrók.. svo voru heimaleikir við Hött og Aftureldingu..KF-Reynir SandgerðiKF-TindastóllKF-HötturKF-Afturelding</description>
3 síðustu heimaleikir KF
      <description>KF eru búnir að spila 3 heimaleiki í Júní og hefur Stórfrænkan mætt á völlinn og reynt að taka myndir af strákunum okkar, þegar þeir eru að spila hér heima.Þriðjudaginn 21. júní tók KF á móti Njarðvík í sól en kulda og vindi. Leikurinn var nokkuð skemmtilegur og skoruðu Njarðvíkingar fyrsta markið, en KF gerði sér lítið fyrir og komst í 4-1, en allt getur gerst í fótboltanum og Njarðvíkingar náðu að jafna leikinn á 92.mínútu!!Mánudaginn 13. júní tók KF á móti Fjarðarbyggð í súld, strekkingsvindi og kulda en áttu flottan leik og unnu 4-1HÉR ER fjallað um leikinn á fotbolti.netLaugardaginn 4. júní spiluðu KF-Dalvík/Reynir og urðu heldur betur teknir í gegn, leiknum lauk 0-3 HÉR ER fjallað um leikinn á fotbolti.net</description>
Bjössi Kobba 80 ára 3.júní 2011
      <description>Föðurbróðir minn hann Bjössi Kobba varð 80 ára þann 3. júní     og bauð til góðrar veislu í húsi eldri borgara 7. júní. Það voru fjölskyldan, gamlir félagar úr Blíðfara, trillukarlar, eldri borgarar og aðrir vinir.     Fjölskylda Bjössa kom honum heldur á óvart þegar "Afmælisgjöfin hans" kom gangandi inn í salinn en það voru engir aðrir en Álftagerðisbræður sem voru mættir og sungu og sögðu skemmtilegar sögur.Já þeir eru alltaf jafnfrábærir!Það voru stuttar ræður, skemmtilegur söngur og myndsýning, og dásamlegar veitingarnar . Og heiðurshjónin Bjössi og Addý skemmtu sér vel Til hamingju með 80 árin elsku frændi :-)</description>
Siggi Olgu 50 ára, Brimbrettagaurar, lítill prins fæddur og Eldjárn og Ýr í stúdíó-Hrannó
      <description>Siggi, þessi yndislegi, skemmtilegi bróðir minn varð 50 ára 20. apríl s.l. en var út á sjó.Þegar ÓF 1 kom í land var boðið til veislu í húsi eldri borgara 4. maí, og þar var boðið upp á góðan mat og góða samveru með skemmtilegu fólki. Stórfrænkan tók að sjálfsögðu fullt af myndum og voru sumar "aðeins öðruvísi" :-)Fjörðurinn okkar fer að verða frægur fyrir fjallasport og brimbrettaiðkun. Um daginn 24. maí,kom hér hópur brimbrettagaura frá Kaliforníu og áttu ekki til orð yfir því að "sörfa" við Brimnestangann.Það er allaf eitthvað að gerast í Stórfjölskyldunni, og 31. maí fæddist fallegur drengur í ættina, hann er sonur Baldvins Orra Jóakims og Sæbjargar og Önnu Margrétar Baldurs og Gunnu.Til hamingju með nýja hlutverkið elskurnar og gangi ykkur sem allra best :-)Amman fær aldrei leið á að mynda barnabörnin sín, og auðvitað átti að mynda Þórarinn Eldjárn fyrir sjómannadaginn, í matrósarfötum uppstilltan og fínan. EN hann var nú ekki neitt sérstaklega fyrir einhverjar uppstillingar, og er myndaserían bara ennþá betri, og varð frábær þegar litla yndisfríða Ásdís Ýr mætti á svæðið og þau léku sér svona flott í stúdíó-Hrannó :-)</description>
Sýning nemenda úr Menntaskólanum á Tröllaskaga 14. maí
      <description>    Laugardaginn 14. maí var sýning á verkum nemenda við Menntaskólann á Tröllaskaga. Nemendur voru með ferðakynningu þar sem kynntar voru  ferðahugmyndir á Tröllaskaga og voru þeir duglegir að fræða fólk sem sýndi þessu verkefni mikinn áhuga.Einnig var sýning nemenda í fagurlistum og verk sem voru unnin í úrgangslist, Nemendur í listljósmyndun sýndu stúdíóportrett sem unnin voru eftir ákveðnum hugmyndum.(Ólína Ýr uppáhaldsfrænka var módelið mitt í listjósmyndun í vetur þar sem ég var að vinna með conseptið: Ofnæmi.)Fjöldi fólks á öllum aldri, sótti sýninguna heim og var ánægt með verk nemenda og ekki síst breytinguna á skólanum okkar. Þetta var mjög góð kynning fyrir íbúa Fjallabyggðar og aðra gesti, að sjá hvað við eigum flottan skóla og fjölbreytt námsefni í boði, bóklegt og verklegt. Sýningin stendur fram yfir laugardaginn 21. maí en þá útskrifar skólinn tvo nýstúdenta. Tilvalið fyrir áhugasama að líta við í skólanum og sjá hvað nemendur hafa verið að vinna að, svo sannarlega jákvæð birtingarmynd þeirra áhrifa sem Menntaskólinn hefur í samfélaginu okkar.</description>
Bikarleikur KF-Dalvík/Reynir
      <description>Stórfrænkan er ekki sérstaklega góð í að skrifa texta við fótboltaleikina, og fékk þennan flotta texta "lánaðan", það er Magni Óskarsson frá Dalvík sem skrifaði hann á fotbolti.net:Nágrannaliðin Dalvík/Reynir og KF áttust við í Valitorbikarnum á  Árskógsvelli í dag. Völlurinn var varla tilbúinn fyrir slíkan  háspennuleik og skartaði Norwich litunum (gulum og grænum á köflum),  veðrið var kalt og talsverður vindur og þeir áhorfendur sem hættu sér út  úr bílunum tóku óðum á sig hinn bláa lit Dalvíkinga. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu enda um ekta nágrannaslag  að ræða. KF byrjuðu leikinn betur og  voru meira með boltann fyrstu  mínúturnar án þess þó að skapa afgerandi færi. Hressilegar tæklingar á  báða bóga og gríðarlegt miðjumoð var einkennandi fyrir þennan leik.    Eina mark leiksins kom þó í fyrri hálfleik en þar var að verki  Þórður Birgisson sem skoraði fyrir gestina, með góðu skoti sem flaug  yfir Hans Beck, markmann Dalvíkur/Reynis.   Eitt besta færi leiksins fékk hins vegar Ragnar Hauksson,  sem lék  einmitt fyrir Dalvik/reyni síðasta sumar. Hann slapp einn í gegn en D/R  hjartað hefur ennþá slegið í Ragnari frá síðustu leiktíð því hann kom  boltanum ómögulega framhjá Hansa markmanni, sem varði stórglæsilega.  Staðan í hálfleik var því 0-1  Seinni hálfleikur var svipaður þeim fyrri, miðjumoð og gríðarleg  barátta og leikurinn lítið fyrir augað. Dalvíkingar sóttu meira án þess  að skapa sér einhver færi af viti. Það besta fékk þó Bessi Víðisson, en  honum tókst ekki að koma boltanum í markið. Eins og gerist reglulega í  svona nágrannaleikjum komu spjöldin við sögu.  Valdimar Pálsson dómari sýndi tveimur leikmönnum það rauða og var  þeim bróðurlega skipt á milli liðana, þar sem leikmaður KF fékk rautt  fyrir tvö gul og stuttu síðar fékk leikmaður D/R beint rautt fyrir brot á  miðjunni. D/R reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en höfðu ekki  erindi sem erfiði og KF því komið áfram í  32 liða úrslit.Dregið var í 32-liða úrslit í Valitor-bikar karlaFrétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina:Set hér mótaskrá allra flokka KF í sumar :-) Mótaskrá KSÍStórfrænkan og Sjóarinn voru að passa yngsta barnabarnið Þórarinn Eldjárn um daginn, og þá var nú skroppið í stúdíó-ömmu og smellt af nokkrum flottum myndum fyrir afa Púllara, af þessum yndislega brosmilda strák :-)</description>
Mikið að gera hjá Stórfrænkunni í apríl
      <description>Andrésar Andarleikarnir eru nýafstaðnir og nú var aldeilis gaman hjá Stórfrænkunni og Sjóaranum, já, fyrsta barnabarnið Ægir Óli Ólafsson var mættur til leiks! Já tæpum 30 árum eftir að pabbi hans var þar í fyrsta sinn. Amma sem hefur verið dyggur aðdáandi þeirra sem mæta á Andres var nú aldeilis í essinu sínu, og myndaði í gríð og erg stelpur og stráka í 8 ára flokki. Og hjartslátturinn jókst þegar ömmustrákurinn fór af stað, og auðvitað stóð hann sig með mikilli prýði eins og allir þessir duglegu krakkar. Og Stórfrænkan fylgdist líka sérstaklega með Söru frænku frá Dalvík sem fór á verðlaunarpall bæði í svigi og stórsvigi :-)Boðgangan var að byrja þegar stórsvigið var að enda og þá var bara að arka af stað og mynda duglegu krakkana þar.Á föstudaginn langa kl: 10 var "Gengið til gleði" þá var gengið hringinn í kringum Ólafsfjarðarvatn og var hægt að velja um tvær vegalengdir. Styttri hringurinn er 13km en sá lengri 17km. Fjöldi manns mætti og naut þess að ganga og spjalla og veðrið var yndislegt.Magga Steingríms hélt sýningu á verkum sínum í "Bláa húsinu" við höfnina á Sigló. "Snillingur í að myndgera með ullinni okkar, og sýndi myndir, stórar sem smáar og  líka þar sem hún vinnur með ullina og leir saman í mynd, athyglisvert og sér stakt. Stórar hvítar ullarmyndir með mynstrum og/eða andlitum. Ég hef ekki séð svona myndir áður".Stína vinkona mín Trampe lýsti sýningu Möggu svona vel og ég er svo sammála :-)Óli og fjölskylda komu norður á skírdag og var yndislegt að hafa þau í Hrannó, Þórarinn var mjög hrifinn af frændsystkinum sínum, enda voru þau mjög dugleg að leika við hann. Auðvitað var skroppið í stúdíó Hrannó og smellt nokkrum myndum :))Karítas Rún fékk hlaupabóluna en var samt ósköp róleg yfir því, þótt hún kæmist ekki út þessa daga. Hún var nú farin að hressast og sá bróðir sinn í stórsviginu :)Stórfrænkan og Sjóarinn skruppu til Rvíkur, á afmælistónleika hjá Björgvin, og það var ógleymanleg stund, að sitja og hlusta og horfa og njóta, Já hann er betri þessi síungi 60 ára söngvari svona live... og eiginlega bara betri eftir því sem hann er eldist :))Svo var kíkkað aðeins í Jóa Útherja og skoðað flotta Púllara sem spilaði með Liverpool í den :))Hér eru svo myndir sem ég leik með að taka út um framrúðuna á suðurleið, það er gaman að sjá hve veðrið breytist á leiðinni, já og mér leiðist þá ekki á leiðinniá meðan!!Sjóarinn kom úr "Norsku" og þá var slegið upp heljarinnar kúttmagaveislu í Hrannó nr. 15 og voru margir góðir gestir sem mættu þetta árið. Það er bara ekki hægt að lýsa svona góðgæti fyrir fólki sem hefur aldrei smakkað, en þeir sem hafa alist upp við að borða kúttmaga, fá vatn í munninn þegar þeir skoða myndirnar :-)Árshátíð Grunnskóla Ólf. var haldinn í Tjarnarborg og þar var sko söngur, gleði og gaman!!Full af myndum í albúmi sem gaman er að skoða. Stórfrænkan skemmti sér rosalega vel,takk krakkar þið voruð frábær!!Stórfrænkan og Sjóarinn fóru á tónleika á Græna hattinum, þar stigu á svið, Helgi Björns og Reiðmenn vindanna, og þvílíkt fjör!! Fólk söng, trallaði og dansaði með, þetta var sko alvöru :))</description>
Færeyjarferðin mín og Siggu Jóns 10.-13.mars 2011
      <description>Stórfrænkan ákvað það með stuttum fyrirvara að skreppa í 4ra daga ferð til Færeyja með Siggu Jóns, tengdamömmu hennar Ásdísar Maríu,. Við áttum að fljúga kl. 9 á fimmtudagsmorgni en ég dreif mig kvöldið áður til Akureyrar og gisti, því það kyngdi niður mesta snjó vetrarins og ekki gat ég hætt á það að teppast í firðinum! Það varð 2ja tíma seinkun á fluginu vegna snjókomu í Færeyjum en þangað komumst við loksins upp úr hádegi! Það sem vakti athygli míns á leiðinni frá Vogum til Þórshafnar var hversu líkt þetta er Íslandi, og ef eitthvað þá var meiri snjór í Færeyjum en heima í firðinum fagra. Við vorum í góðu yfirlæti á Hótel Hafnia og var stutt að skreppa og skoða t.d. niður á höfn, í Tinganes eða Skansin, já og síðan góðan göngutúr í Viðarlundin og fórum í Listasafnið, skoðuðum Tórsvøll og aðeins kíkkað og keypt smá í SMS-verslunarmiðstöðinni, ofl. ofl.  Það var líka skemmtilegt ferð að hoppa upp í strætó, og skoða Þórshöfn og nágrenni, ókeypis    Við ætluðum að fara og skoða Kirkebøur en um helgar gengur strætó ekki þangað á þessum tíma árs. Þannig að það verður bara gert í næstu ferð. Stórfrænkan ákvað það á laugardeginum að fara eitthvað út í buskann og hoppaði upp í rútu og fór alveg á endastöð sem var Klaksvik. Ég hafði það á tilfinningunni að ég væri bara á Ísalandinu góða, því það snjóaði og var skítaveður, moksturstæki á þjóðvegunum og varla fólksbílafæri sumstaðar. Það var stoppað 1og hálfan tíma í Klaksvik og þá var bara að labba um og mynda til að halda á sér hita, þar til ég komst inn í rútuna aftur!Christianskirkjan í Klaksvik Á sunnudeginum fórum við í góðan göngutúr í dásamlegu veðri, og ég verð að segja það að gömlu húsin og nöfnin á þeim eru yndisleg, og mér fannst Þórshöfn fallega sjarmerandi bær og fólkið vingjarnlegt, brosmilt og hjálpsamt. Á leiðinni út á flugvöll, ég er ekki viss hvar þetta er.Og við vorum orðnar nokkuð góðar að skilja færeyskuna, ef þeir töluðu ekki of hratt :-) Það er alveg á hreinu að Stórfrænkan á eftir að bjóða Sjóaranum í sumarfrí til Færeyja og keyra um fallegu eyjarnar, þá er sko hægt að stoppa og skoða alla þessa fallegu staði sem ég sá bara út um bílrúður. Annars tók ég fullt af myndum, sem segja meira en bullið í mér, þannig að verið bara dugleg að smella beint á mynd og fara beint inn í albúmið.HÉR ER FLOTT AÐ SKOÐA Á GOOGLE :)</description>
Bubba & Möggu CUP nr. II og skemmtileg börn
      <description>Í gær héldu Margrét og Björn sitt annað mót í mótaröðinni M/B CUP. Keppt var í stuttri sprettgöngu og voru 27 þátttakendur með í mótinu. Gengið var með hefðbundinni aðferð í miðbænum við tjörnina og fjöldi fólks mættur til að fylgjast með.Arngrímur Birnisson og Gullu, gaf sér tíma til að stoppa aðeins á meðan ég tók mynd af honum :-)Úrslit eru HÉRGöngudrottningarnar okkar sem stóðu sig frábærlega á Unglingamótinu eru önnum kafnar þessa dagana í "barnastússi" og hefur gengið misjafnlega vel. EN þær Hugrún Pála og Ólöf kepptu á mótinu, og Jónína passaði :-)Eftir mót var svo haldið upp í skíðaskála þar sem þau hjónakornin buðu öllum upp á kaffi, kakó og meðlæti. Flottur dagur í frábæru veðri og allir skemmtu sér konunglega!Stórfrænkan hitti líka skemmtilegar systur sem voru að leika sér og voru alveg til í að láta mynda sig. Þetta eru Bríet Brá og Fjóla María dætur Gulla Halla og Öldu og Ásu Einars og Fjólu.Það kom líka lítill frændi minn sem var nú ekki alveg eins hrifinn af myndatökunni og heitir hann Hilmar Mikael sonur Gerðu Þorsteins og Huggu Guðjóns.Og svo eru tvö albúm af Þórarni Eldjárn sem skrapp með ömmu í stúdíó, og það var sko fjör á okkur Ljóna litla.Það var líka rosalega skemmtilegt þegar hann fékk að fara í heita pottinn í fyrsta sinn! </description>
Bubba&Möggu CUP 23.mars 2011
      <description>Eftirfarandi frétt er að finna á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar---Á morgun miðvikudaginn 23. mars verður haldið fyrsta "skíðamótið" af fjórum í mótaröð sem Björn Þór og Margrét Toft standa fyrir. Um er að ræða mótaröð þar sem skemmtun og nærvera fjölskyldunnar skiptir meira máli heldur en sjálf úrslit hvers móts fyrir sig. Á morgun hefst mótið kl. 17:00 og mætin er við Tjarnarborg.Vonumst við til að sem flestir láti sjá sig, krakkarnir, mamma og pabbi, afi og amma, allir á skíðum og skemmtum okkur saman í stuttri sprettgöngu. Að móti loknu verður haldið upp í skíðaskálann í Tindaöxl og spjallað yfir kakó og einhverju meðlæti.Stórfrænkan mætti að sjálfsögðu og tók þónokkuð af myndum af þessu duglega skíðagöngufólki, og þáði svo kaffisopa í skíðaskálanum eftir mótið.</description>
Öskudagur í Ólafsfirði 9. mars 2011
      <description>Jæja þá er Stórfrænkan loksins búin að fara yfir öskudagsmyndirnar!! Það var mikið sungið fyrir  okkur sem vinnum í Fjarvinnslu Alþingis. Ýmsar furðuverur streymdu til  okkar eftir hádegi og sungu og þáðu nammi fyrir.   Þetta var mjög gaman og allskonar skemmtileg lög sem voru sungin fyrir okkur og sem betur fer klikkuðum við ekki á að kaupa nammi til að verðlauna söngvarana Svo mættu framtíðarsöngvararnir þau, Ásdís Ýr ballerína og Þórarinn Eldjárn Ljóni í sínum fínustu öskudagsdressum.Ef ég þarf að fá aukaorku, þá er bara að fara góðan göngutúr út á Kleifar og upp á Hlass, útsýnið er dásamlegt .Og svo er nauðsynlegt að fara með börnin í heimsókn í fjárhúsin hjá frístundabændum, þeim Ásdísi Ýr og Þórarni Eldjárn fannst rollurnar örugglega skrítnar!</description>
 Gleðilegt ár!! Loksins myndir og smáblogg :-)
      <description>Stórfrænkan hefur vægast sagt vanrækt þessa skemmtilegu myndasíðu sína í allt of langan tíma, og var að hugsa um að hætta með síðuna, því það væru flestir með Facebook. EN það er bara ekki alveg rétt hjá mér, ég sé að það er töluverður fjöldi sem kíkkar hér á hverjum degi og skilur ekkert í þessari leti hjá Stórfrænkunni :-)Ég ætla allavega að halda áfram að setja inn myndir þó að bloggið verði minna, því 123.is er besta myndageymslan mín. Og ég ætla að byrja á því að setja inn myndir sem ég tók 22. des. þegar Sigurbjörgin kom í land fyrir jól.Það var fallegt á Sigló í frostinu þennan daginnÁ milli jóla og nýárs var innanhúsfótbolti og ég kíkkaði aðeins og tók nokkar myndir af "mínum strákum", svona til að prófa að mynda án flass :))Jólin voru dásamlegur tími hjá Stórfjölskyldunni eins og alltaf,  og milli jóla- og nýárs var allt okkar fólk mætt á svæðið og það var mikið fjör um áramótin í Hrannó nr. 15 Og við ætlum að eiga gott og farsælt nýtt ár :)Söng- og hæfileikakeppni Grunnskóla  Fjallabyggðar var haldin í Tjarnarborg í sl. fimmtudag að viðstöddu  fjölmenni þar sem rúmlega 50 þátttakendur kepptu í 28 atriðum. Flestir  keppendur sungu en einnig voru sýnd dansatriði og spilað á hljóðfæri.  Allir keppendur fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna auk þess sem veitt  voru verðlaun, bæði fyrir hópatriði og einstaklingsatriði. Þeir  keppendur sem hlutu verðlaun voru:Hópar: 1. sæti    Vala Karen Ingólfsdóttir og Gabríela Rós Gunnlaugsdóttir. 2. sæti    Lóa Rós Smáradóttir og Snjólaug Anna Traustadóttir. 3. sæti    Júlía Birna Ingvarsdóttir, Jóhanna Ragnheiður Sigurbjörnsdóttir og Elísabet Alla RúnarsdóttirEinstaklingar: 1. sæti    Sólveig L. Brinks Fróðadóttir/Sigríður Alma Axelsdóttir. 2. sæti    Þórunn Perla Jóhannsdóttir. 3. sæti    Janus Þorsteinsson Roelfs. Frumlegasta atriðið: Götudansararnir  (Aníta Ósk Logadóttir, Árni Bent Þráinsson, Dagbjört Rut Tryggvadóttir,  Einar Breki Tómasson, Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir, Helga Dís  Magnúsdóttir, Salka Björk Molina og Tinna Kristjánsdóttir).Svo eru alltaf albúm með Þórarni Eldjárn, sérstaklega fyrir Ægir Óla og Karítas Rún, svo þau geti fylgst með litla frænda sínum.Þórarinn í eldhúsinu (í des) og Ásdís Ýr</description>
Listaganga og sýning á Sigló 9. des. 2010
      <description>     Normal   0         false   false   false                             MicrosoftInternetExplorer4             st1\:*{behavior:url(#ieooui) }        /* Style Definitions */  table.MsoNormalTable  {mso-style-name:"Table Normal";  mso-tstyle-rowband-size:0;  mso-tstyle-colband-size:0;  mso-style-noshow:yes;  mso-style-parent:"";  mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;  mso-para-margin:0cm;  mso-para-margin-bottom:.0001pt;  mso-pagination:widow-orphan;  font-size:10.0pt;  font-family:"Times New Roman";  mso-ansi-language:#0400;  mso-fareast-language:#0400;  mso-bidi-language:#0400;}      Stórfrænkan og Sigga vinkonufrænka mín, Ásdís María og Hrönn, skelltum okkur í Listagönguna á Siglufirði, 9.des . Það var vel mætt, já um 70 manna glaðlegur hópur sem lagði af stað frá Sparisjóðnum þaðan sem þátttakendur heimsóttu síðan Gallerí Sigló, Iðju, Ljósmynda - og myndlistasýningu MTR í Ráðhúsinu, Abbý, Begga Morthens, Kvennasmiðjuna,, Fríðu, og Ljóðasetrið hjá Tóta.  Það var ljúft að enda kvöldið á að fá sér heitt kakó á Hannes Boy á sjálfan afmælisdag Stórfrænkunnar.  </description>
Aðventan í Ólafsfirði og barnabörnin.
      <description>Það er alltaf nóg um að vera hér í firðinum fagra og nágrenni. Núna 7. des voru frábærir styrktartónleikar á vegum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga, Ágóðinn 347 þús. rennur til Barnaspítalasjóðs Hringsins. Margir komu fram á tónleikunum og gáfu alla sína vinnu og það voru:Daníel  Pétur Daníelsson, Eyrún Brynja Valdimarsdóttir, Gómar, Lísa Margrét  Gunnarsdóttir, Lísebet Hauksdóttir, Ólöf Kristín Ásgeirsdóttir ásamt  barnakór, Rakel Anna Knappett, Svava Jónsdóttir, Þórarinn Hannesson,  Þorsteinn Bjarnason og Þorsteinn Sveinsson. Og síðast en ekki síst, Magnús Ólafsson sem aðstoðaði krakkana við að skipuleggja og spilaði líka á tónleikunum.Stórfrænkan er búin að fara á tónleika hjá Friðrik Ómar og svo fórum við vinkonufrænkurnar á Íslandsklukkuna. Báðar þessar sýningar voru í glæsilega menningarhúsinu Hofi á AK, og á Stórfrænkan eftir að fara á Frostrósartónleika í næstu viku. Þá má nú ekki gleyma Gospeltónleikum í Siglufjarðarkirkju, Aðventukvöldi í Ólafsfjarðarkirkju og Aðventutónleikum Kirkjukórs Ólafsfjarðar í Tjarnarborg. Og það er bara 9. des í dag :-) Fjóla María var alveg dolfallin yfir jólaljósunum :)                                       Arnar Helgi aðeins að snerta :)Og það snjóaði og snjóaði og......Á aðventunni var jólamarkaður í Tjarnarborg og tendrað á fallega jólatrénu okkar. Litlu jólahúsin eru komin upp var yndælis stemning, úti sem inni.Gunni í Hlíð var ánægður með Birnu og Svanfríði, Ragnar með mömmu sinni listakonunni Kristínu TrampeLitli fallegi ömmu og afastrákurinn, Þórarinn Eldjárn, dafnar vel og er svo yndislega glaðvært og fallegt barn, og að sjálfsögðu er nýtt albúm og einnig nokkrar myndir af barnabörnunum okkar saman, Ægir Óla, Karítas Rún og Þórarinn Eldjárn sem voru teknar í okt.Sólveig Anna og Kristinn Axel eignuðust yndislega fallega prinsessu 11. nóv. og auðvitað var farið og myndað blessuð börnin :)Snúlla litla og Þórarinn Eldjárn...Framtíðarvinir</description>
Grænlenskir listamenn og haustið í firðinum fagra
      <description>Í tilefni af grænlenskri menningarviku barna og unglinga voru tveir  grænlenskir listamenn staddir í Fjallabyggð. Pauline  Motzfeldt sem sýndi grænlenska söngva og dansa og sagði sögu trommunnar.  Pauline er kennari og hefur haldið fyrirlestra og námskeið í Danmörku  og Grænlandi. Miki Jacobsen er ljósmyndari, myndlistamaður,  tónlistarmaður og leikari. Hann gerir m.a. andlitsgrímur eftir  grænlenskri hefð. Hann hefur haldið fjölda sýninga, bæði á Grænlandi,  Norðurlöndunum og í Kanada.Á laugardaginn voru þau Pauline og Miki með sýningu í litla salnum í Tjarnarborg og var virkilega gaman að horfa og fræðast um grænlenska menningu.HAUST Í ÓLAFSFIRÐINú er veturinn mættur og allt hvítt í firðinum fagra, og þá er alveg tilvalið að setja inn eitthvað af fallegum haustmyndum sem Stórfrænkan tók í september.Hornbrekka og FlóðiSveitin okkarOg fjörðurinnOg svo eru hér nokkrar myndir af Ólínu uppáhaldsfrænku :)</description>
Þórarinn Eldjárn skírður, gönguferð í Héðinsfjörð ,brimbrettagaurar og golf í október 2010
      <description>Fallegi ömmu- og afastrákurinn okkar var skírður af Sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttir þann 16. okt. og fékk fallegt og sterkt nafn: Þórarinn Eldjárn Jónsson. Dagurinn var yndislegur og mikið af ættingjum og vinum sem komu í kirkju og veislu og glöddust með okkur.(Karítas Rún og Ægir Óli með afa í kirkjunni)(Amma Sigga, Jón með Þórarinn, Ásdís María, amma Guðný og afi Ægir) Hann dafnar svo vel þessi elska orðinn rúmlega 2ja mánaða og amma er búin að taka mjööög mikið af myndum frá því að hann kom í heiminn!!Veðurblíða hefur verið með eindæmum í haust og þykir það mjög merkilegt að það skuli vera haldið golfmót í Skeggjabrekku í lok sept. og svo aftur í okt. Stórfrænkan fór og fylgdist með "Bændaglímunni" og skemmti sé konunglega á meðan var myndað.(fullt af myndum í albúmi)HéðinsfjörðurÞað var nú aldeilis hægt að fara í góða gönguferð í Héðinsfjörðinn, og dagsetningin eftirminnileg 10.10.'10. Og fleiri hafa hugsað það sama því það var þvílíka traffíkin um allan fjörð, fólk sem naut veðurblíðunnar og fegurðarinnar. Stórfrænkan gekk meðfram vatninu vestanmegin og fór alla leið niður í fjöruna, og finnst það frábært að vera loksins búin að ganga í Héðinsfjörð, í fyrsta en ekki í síðasta sinn :)Og að sjálfsögðu voru teknar myndir á þessum merkisdegi þann 10.10.'10 smellið á myndirnar og beint í albúm :)Brimbrettagaurar við Brimnes.Já og ekki má gleyma brettagaurunum flottu sem komu og léku sér hér í briminu 18. sept. Ótrúlegt að fylgjast með þeim.!</description>
Héðinsfjarðargöng vígð 2. okt. og Málverkasýning Freyju Dan.
      <description>Það var mikið um dýrðir 2. okt þegar Héðisfjarðargöngin voru loksins vígð. Almættið gaf okkur dásamlegt veður og firðirnir þrír skörtuðu sínu fegursta í haustlitunum. Mikill mannfjöldi var samankomin og voru 10 rútur til taks til að flytja fólk í Héðinsfjörð. Og mikil voru fagnaðarlæti í rútunni þegar við komum út úr göngunum í fjörðinn!!Kórar, gjörningar,ræður og vígsla og svo kaffisamsæti í Íþróttamiðstöðinni.Héðisfjörðurinn skartaði sínu fegursta í tilefni dagsins.Mikill mannfjöldi mætti svo í kaffisamsæti, og þar voru ræður, söngur og ávörp. Hér er góður pistill og myndir á Siglo.isOg síðan afhentu 4 menn sem voru í áhöfn Stíganda, björgunarbátinn til varðveislu á Síldarminjasafnið.Freyja Dana, listakona og vinkona mín opnaði málverkasýningu sína til minningar um föður sinn Kristjá H. Jónsson. og verður hún opin frá 3.okt.-10.okt. Frábær sýning sem ég hvet alla til að fara og skoða.</description>
Gengið á Hornbrekkufjall 21. júlí 2010
      <description>Loksins fóru Sjóarinn, Stórfrænkan og Álakvíslhjónin í fjallgöngu saman. Oft vorum við búin að tala um það að fara á þetta eða hitt fjallið, en aldrei varð neitt úr því, fyrr en í sumar.  Einn sólríkan júlídag var ákveðið að klífa Hornbrekkufjall, Stórfrænkan hefur aldrei farið hærra en "upp á topp í lyftunni" að vetri til sökum lofthræðslu, en nú skyldi sko klifið enn eitt fjallið!!Það þarf ekki að skrifa langan pistil um þessa ferð, heldur læt ég myndirnar tala eins og svo oft áður :)En að klífa fjallið og labba eftir því frá suðri til norðurs, í þessu dásemdarveðri, var alveg ótrúleg upplifun fyrir okkur öll.Og það verður ekki langt þar til næsta fjall verður klifið !</description>
Álakvíslfjölskyldan í heimsókn
      <description>Það var mikil gleði þegar Óli og fjölskylda komu loksins norður í fjörðinn fagra þann 16.júlí og var ýmislegt brallað.Verið í leikjum, veitt á bryggjunni, farið með Jóni á trillunni út á fjörð, leikið rosalega mikið við Ólínu uppáhaldsfrænku, grillað, slakað á í pottinum,farið á Gásir á miðaldahátíð,Haldið upp á afmæli Ægis Óla, knúsað og kúrað, já þvílíkar dýrðarstundir.Já og ekki má gleyma því, að við Sólveig fórum þessa yndælis kvöldgöngu með Hektor og Cobru upp í Bríkagil. Það var mígandi rigning en hlýtt og skemmtilegt að labba í svona veðri í góðum félagsskap!</description>
Sumarfrí og Blús 2010
      <description>Það er orðið langt síðan Stórfrænkan hefur sett inn myndir og smáblogg með. Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá okkur í Hrannó nr. 15. :)Sjóarinn var í fríi frá því í lok maí, og var á fleygiferð eins og venjulega, dytta að húsinu, garðinum, smíða útisturtuklefa, grafa töluvert og breyta heilmiklu, ganga frá ruslatunnuskýli, setja fánastöng,snúrustaur,helluleggja.  Já þessi elska getur bara ekki verið aðgerðarlaus!Við fórum tvö suður í bústað í Laugarás og áttum góða daga í sól og blíðu, slökuðum vel á , á mill þess sem við vorum að keyra um og skoða eins og alvöru túristar með myndavélina á vinsælum stöðum. Já, já, Geysir,  GullfossSeljalandsfoss, Skógarfoss, Dyrhólaey. Blúshátíð Ólafsfjarðar var 2. og 3. júlí og Stórfrænkan dreif sig á laugardeginum og skemmti sér frábærlega. Mood, Segulbandið og Gæðablóð sáu um stemmninguna!MoodKormákur og og hinir GæðablóðsgæjarnirSegulbandiðVið fórum til Rvíkur um miðjan júlí og hittum þá barnabörnin, okkur var boðið á hina frægu hamborgarafabrikku og svo út á Gróttu, þar sem við fengum þetta fína sólsetur og nutum útiverunnar.</description>
KS/Leiftur-Víðir á Ólafsfjarðarvelli 17. júlí
      <description>Meistaraflokkur karla náðu í þrjú dýrmæt stig á laugardag gegn Víði. Lokatölur 2-0, sömu lokatölur og urði í fyrsta leiknum í vor gegn Víði. Gabríel skoraði sitt þriðja mark í tveim leikjum með skalla eftir aukaspyrnu frá Eiríki í fyrri hálfleik.  Já það voru allskonar "móment" í leiknum :)Hörður Már skoraði seinna markið á lokamínútu leiksins eftir að hafa sloppið í gegnum vörn gestanna.  Eftir góðan leik gegn Hetti s.l. miðvikudag þá áttu heimamenn ekki sinn besta leik, en gerðu nóg til að næla sér í öll þrjú stigin sem voru í boði. Nú er liðið komið með 20 stig og heldur fimmta sætinu í deildinni. Næsti leikur er laugardaginn 24. júlí á Ólafsvík gegn toppliði deildarinnar og sá leikur mun eflaust segja til um það hvort að liðið ætli að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna. (texti tekinn af vef KS )</description>
Sunnudagur á Nikulásarmóti 2010
      <description>Nú eru allar myndirnar sem ég tók um helgina komnar inn í albúm,   Einar tók nokkrar jógaæfingar þegar lítið var að gera í markinu!!Vonandi hafið þið jafngaman af að skoða þær eins og ég hafði gaman af að mynda :)Ef þið hafið áhuga á að kaupa myndir, sendið mér endilega póst :)</description>
Nikulásarmót 2010
      <description>Nikulásarmótið er haldið í 20. skipti hér í Ólafsfirði og vorum við farin að hafa smááhyggjur af veðrinu, því hér rigndi látlaust og hálfgerðar tjarnir mynduðust á tjaldsvæðum, aðeins tveim dögum áður en keppendur og þeirra fólk átti að mæta í fjörðinn fagra.En auðvitað stytti upp og var þetta fína veður á föstudag og laugardag, smá hafgola, en góður skjólfatnaður og góða skapið redduðu því :))Stórfrænkan var að sjálfsögðu á svæðinu þessa tvo fyrstu daga og tók alveg rosalega mikið af myndum. Flottir strákar í 7fl. Þeir eru allir í leikskóla :)Flottir strákar í 7 fl.Endilega verið dugleg að skoða, og ef það eru einhverjar myndir sem þið hafið áhuga á þá sendið mér póst.</description>
Krakkamót á Dalvík 28. júní 2010
      <description>Stórfrænkan dreif sig á Dalvík til að fylgjast með 7. og 8. fl. og 6.fl. stelpna í fótbolta. Dalvík-Leiftur 8. flokkur7. flokkur7.flokkur6.fl. stúlkurÞetta voru svo skemmtilegir leikir og að sjálfsögðu tók ég fullt af myndum af stjörnum framtíðarinnar. Vonandi hafið þið jafngaman af að skoða myndirnar eins og Stórfrænkan hafði gaman að mynda.!</description>
Stúdentaveisla og miðnæturganga
      <description>Sonja Geirsdóttir og Önnu Rósu varð stúdent frá MA 17. júní s.l. Sonja sem útskrifaðist með frábærar einkunnir. Sonja verður 19 ára í haust.  Ættingjar og vinir voru boðnir í dýrindisveislu í Félagshúsið Kjarna í Kjarnaskógi og áttum þar virkilega góðan dag með nýstúdentinum Sonju.    Ferðafélagið Trölli var með miðnæturgöngu upp í Ólafsfjarðarmúla 25. júní, um 30 manns mættu og gengu upp á plan í blíðskapaveðri og fengum við svo sannarlega miðnætursól.   miðnætursól upp á plani  Sjóarinn horfir til hafs  Glaðir eftir góða göngu, Ægir og Jón M.    Það er ótrúlegt að sjá hvernig vegurinn sem við keyrðum á fyrir 20 árum, er orðinn í dag.  Stórfrænkan tók fullt af myndum, sem sýna hversu hrikalegt vegastæðið er í dag. Endilega kíkkið í albúmin  </description>
Sjómannadagshelgin í Ólafsfirði 5-7 júní 2010
      <description>Sjómannadagshelgin er alltaf skemmtileg í firðinum fagra. Það er alltaf mikið um að vera og þetta árið var engin undantekning, dagskráin mikil og skemmtileg.Dagskrá við höfnina: kappróður og stóladrátturMX-Íslandsmót í mótorcross, þar var spennandi keppni og úrslit eru hér Nokkrir bekkjaárgangar voru að hittast, skemmtidagskrá byrjaði við Tjarnarborg á laugardagskvöldinu, en þar var hinn eini sanni Maggi Mix að skemmta, og var fjöldi manns mættur á svæðið.Sunnudagurinn byrjaði með skrúðgöngu og messu, þar voru tveir eldri sjónmenn voru heiðraðir fyrir störf sín, Gunnlaugur Jónsson (Dunni) og Sigmundur Agnarsson(Simmi)Landmenn og Sjómenn kepptu í fótbolta og var það rosaleg viðureign, með viðeigandi pústrum og látum en allt í góðu eftir leik, sem lauk 3-3 og þurfti vítaspyrnukeppni, sem landmenn unnu.Útiskemmtun við Tjarnarborg var alveg mögnuð, fyrst sungu nokkrar ólafsfirskar blómarósir og svo Friðrik Ómar og Jógvan og fólk söng og dillaði sér í takt og hélt því sko áfram þegar sjálfur Páll Óskar steig á svið. Veðrið var líka dásamlegt og fólk naut þess að hitta vini og kunningja og eiga virkilega góðan dag.Mikill fjöldi var mættur við Tjarnarborg Kaffisala slysavarnarkvenna er ómissandi á sjómannadaginn og Stórfrænkan bauð að sjálfsögðu Sjóaranum sínum í kræsingarnar, og svo bauð hann á stórskemmtun sjómanna um kvöldið.Friðrik Ómar og Jógvan voru veislustjórar og Kolbeinn sonur okkar sló í gegn sem ræðumaður kvöldsins. Friðþjófur Jónsson vann Alfreðsstöngina, Mánabergið vann róðurinn og Sigurbjörgin stóladráttinn. Maturinn var æðislegur.Kvöldið áður hafði Villi Þór (sonur Nínu og Davíðs) verið kosinn Herra hinsegin í Rvík., og birtist óvænt á sviðinu þegar Friðrik Ómar frumflutti Gay-pride lagið. Sólveig og Ásdís vildu fá almennilega mynd af sér með fyrsta MR. Gay Iceland Vilhjálmi Þór :)Og ég get sagt ykkur það að þakið rifnaði næstum af Borginni, þegar strákurinn okkar steig á svið, þvílík voru fagnaðarlætin.Páll Óskar var svo DJ.kvöldsins og var með pásulaust ball... Og það var dansað og sungið, og dansað og dansað...............Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að gera, sérstaklega þegar fólk eins og Hlynur, Ingimar taka að sér að sjá um svona viðburði og virkja aðra aðila með sér. Þá sáum við líka hve Björgunarsveitin okkar er vel búin tæknum, já og mönnum :)Frábær helgi og takk fyrir mig. Ég er strax farin að hlakka til næstu skemmtunar.Stórfrænkan myndaði eins og venjulega alla viðburði sem hún náði að skjótast á!! Svo endilega kíkkið í öll albúmin :))</description>
Ólafsfjarðarvöllur KS/Leiftur-Víkingur Ólafsvík 22. maí
      <description>Fyrsti heimaleikurinn í 2. deild var í dag, gaman var að sjá hve margir áhorfendur mættu í góða veðrinu,    Þrátt fyrir tap 1-3 þá var þetta baráttuleikur og gaman að horfa og mynda.  Ragnar Hauks skoraði mark KS/Leifturs úr víti           Gabríel í baráttu um boltann Matti stuðningsmaður nr.1        Aníta Heiða og Kiddi              Ólína Ýr uppáhaldsfrænkaStórfrænkan er búin að setja inn fullt af myndum, sem segja kannski eitthvað um leikinn :-)</description>
Vortónleikar 20. maí 2010
      <description>Vortónleikar Tónskóla Ólafsfjarðar voru haldir í Tjarnarborg í gær. Það voru margir sem mættu til að hlusta á allt þetta efnilega tónlistarfólk sem við eigum. Ólína Ýr harmonikkuleikari  Flott hljómsveitSigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir fiðluleikariRakelAxel Pétur og Ave Hulda og MaggiFjölbreytt og skemmtileg dagskrá var í boði nemenda, yngsti flytjandinn Almar Gíslason,er á leikskóla  og sá elsti Björn Þór hinn síungi, er eldri borgari.Þessar skemmtilegu, efnilegu tónlistarstelpur vildu endilega að ég tæki mynd af þeim saman, og að sjálfsögðu gerði Stórfrænkan það :)Emelía Ju, Embla, Selena</description>
KS/Leiftur-Tindastóll og Nýr Ólafsfirðingur, fæddur 11. maí 
      <description>KS/Leiftur spilaði sinn fyrsta heimaleik á Ólafsfjarðarvelli og unnu góðan sigur á Tindastól 2-1. Þetta var leikur í Visa-Bikarkeppni KSÍ                                      Stórfrænkan sá aðeins seinni hálfleik og missti þar af leiðandi af öllum mörkunum, en skaut samt nokkrum myndum á leiknum. Þeir sem skoruðu í leiknum: KS/Leiftur 2 - 1 Tindastóll: 1-0 Ragnar Hauksson 1-1 Ingvi Hrannar Ómarsson 2-1 Sigurbjörn Hafþórsson   Lítill 11 marka og 49 cm, fallegur Ólafsfirðingur fæddist 11. maí sl. Hann er sonur Hrannar(Helga og Róslaugar) og Jóns Gylfa (Kidda og Fanneyjar) Stórfrænkan fór í heimsókn og fékk að taka nokkar myndir af þessum yndislega fallega drengTil hamingju kæra fjölskylda :)  </description>
Ólína uppáhaldsfrænka og fleiri Bandýmyndir
      <description>ELSKU HJARTANS ÓLÍNA UPPÁHALDSFRÆNKA MÍNHJARTANLEGAR HAMINGJUÓSKIR MEÐ 11 ÁRA AFMÆLIÐ Í DAGFULLT AF KNÚSI OG KOSSUM TIL ÞÍN OG HALTU BARA ÁFRAM AÐ VERA SVONA YNDISLEG :)Það eru komnar fleiri Bandýmyndir :)   </description>
Bandýmótið 8. maí í Ólafsfirði
      <description>Bandýdagurinn rann upp bjartur og fagur, sólskin og logn, enginn snjór á götum bæjarins eins og í fyrra. Og allir löbbuðu á vorinu :)  Hornbrekka    Brimnes hótel    BæjarstarfsmennSparisjóðurinnLeikskólinnFramhaldsskólatöffararnirSkrúðgangan fór frá Tjarnarborg og er eingöngu skipuð rosalega lífsglöðu fólki frá 18-70+, sem var í allskonar furðulegum klæðnaði, á leið í íþróttahúsið.   FcBumbiNorlandiaÞar voru svo liðin kynnt og innkomuatriði svo tilkomumikil og skemmtileg að annað eins sést bara ekki annarsstaðar á Íslandi :) ...   GrunnskólinnMúlatindurAðalmarkmið leiksins er alltaf, að hafa gaman af honum,,,, skemmta sér og öllum hinum sem á horfa :)))Hér í firðinum fagra var Bandýdagurinn haldinn hátíðlegur frá 10 að morgni til ca 3 að nóttu :)  Sigurvegarar mótsins: KrúsóEndilega skoðið myndirnar frá þessum frábæra degi... það er komið eitt albúm með ca 200 myndum, og eiga eftir að koma miklu fleiri :))Bandýleikurinn sjálfur er þessi: http://is.wikipedia.org/wiki/Band%C3%BD   Þessi Ólafsfjarðarmynd er tekið frá Hlassinu 9. maí 2010  </description>
Skeggjabrekkudalur-Sandskarð 1. Maígangan mín
      <description>Stórfrænkan ákvað að fara í 1. maígönguna sína á gönguskíði upp í Skeggjabrekkudal. Veðrið var svo æðislegt, sól og blíða og frábært skíðafæri.                                   Þónokkur snjóflóð hafa farið alveg niður að ánni.        Krisján Hauks var að koma ofan af Hálsinum, og sagði að það væri fín troðaraslóð alla leið, og datt þá Stórfrænkunni það snjallræði í hug að ganga líka upp í skarð!!  Það væri örugglega ekkert mál og ekkert rosalega langt!En ég verð nú að viðurkenna það að síðustu brekkurnar voru brattar og erfiðar, þá var nú bara tekið af sér skíðin í síðustu brekkunni og labbað með þau upp á Hálsinn. Þegar ég fór að nálgast brúnina, heyrði ég mannamál, og hélt fyrst að þetta væru ofheyrnir sökum þreytu!! En þá var hópur vélsleðamanna og einn þingmaður að spóka sig uppi á Hálsinum!!                     Hópurinn og  Siv Friðleifsdóttir þingmaður Þau urðu nú jafnhissa að sjá þessa skrítnu brosandi konu sem kom móð og másandi með gönguskíðin sín.Þvílíka dásamlega útsýnið þarna.... Vá... er eiginlega það eina sem hægt er að segja. Og svo var að að komast niður aftur, úff, ég þessi lofthrædda kona átti nefnilega eftir að fara niður þessar rosalegu bröttu brekkur, og það var reynt að fara í plóg á gönguskíðunum, en samt..... flogið á hausinn, lent heldur harkalega, nokkrum sinnum, og þakkaði fyrir mjúkar lendar og lær sem tóku mestu höggin!!! En niður komst Stórfrænkan óbrotin, ójá, en í dag er ég bara gul, blá og marin og alsæl að hafa loksins farið á gönguskíðum upp í Sandskarð (eða Háls)Héðinsfjörður--Háls--Ólafsfjörður</description>
Andrésar Andarleikarnir 2010
      <description>             Gleðilegt sumar kæru ættingjar og vinir   Stórfrænka fór á Andrésar Andarleikana og naut þess að vera í Hlíðarfjalli í 3 daga.Veðrið var einstakt, sól, og blíða og nægur snjór.   Um 800 krakkar voru mættir til  keppni, og fjöldi, þjálfara, foreldra, og ætttingja sem eru mættir til að fylgjast með og hvetja krakkana,skipta hundruðum. þessir duglegu krakkar voru í Stjörnuflokki (fatlaðir einstaklingar) Keppendur í 6-7 ára og 9 áraSara Björk Olgudóttir og Sigga                                     Einar Breki Þuríar og TommaJá það var sko líf og fjör í Hlíðarfjalli. Stórfrænkan naut þess að klifra upp brekkur og hóla til að taka myndir í þessu dásemdarveðri af skíðafólki framtíðarinnar.Hér er hægt að skoða árangur keppendaMargrét Líf Svövu og Kjartans                                    Hrannar Mæju og Magga                                                Stúlkur 12 áraSigurbjörg Áróra (Ásgeirs og Stínu)                            Snjólaug Anna (Trausta og Naree)                                            Strákar 13-14 áraÁgúst Örn( Jóns V. og Hrannar)                                Orri Fannar (Jóns og Kristrúnar)Jón Fannar (Björns og Hugrúnar) varð nr. 4 í svigi 13-14 áraJónína Kristjáns og Helgu: Andrésarmeistari í hefðbundinni göngu og skauti 13-14 áraAlexía María Gests og Steinu: Andrésarmeistari í svigi og stórsvigi 13-14 áraTil gamans þá setti ég inn tvö albúm með síðustu vetrarmyndunum sem ég tók í firðinum fagra .</description>
Skíðamót, Páskar, Ferming, Afmæli 
      <description>Stórfrænkan hefur ekki bloggað síðan í febrúar, þrátt fyrir bloggstíflu þá er nú samt alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast í tilverunni, ójá...Veðrið setti heldur betur svip á alla páskadagskrána í firðinum fagra, snjóflóð stórhríð, og ófærð. Það þurfti að fresta ýmsum skemmtilegum uppákomum, EN það var "Gengið til gleði" á föstudaginn langa í blíðskapaveðri(sem var fram að hádegi) og er hægt að skoða myndir á Tröllasíðunni.  (gott veður á Kleifum þegar við Ægir trimmuðum f. hádegi)      Stórfrænkan átti ánægjulega kvöldstund með Leikfélagi Ólf. og Gumma Fjólu, þar sem þau fluttu ljóð, bæði lesin og sungin og leiklesið var úr verkum H.K.Laxness og Davíðs Stefáns. frá Fagraskógi. Vonandi verður þetta árlegur viðburður hjá L.Ó. því þetta var frábært kvöld hjá ykkur öllum sem tóku þátt. En sá sem kom mest á óvart var Sigmundur Agnarsson, þegar hann steig á svið og flutti ljóð eftir Davíð af þvílíkri innlifun og snilld að maður fékk gæsahúð!!Takk kærlega fyrir mig!!Á 2. í páskum fór Stórfrænkan og myndaði á Minningarmóti um tvíburanna í Burstabrekku, þar voru rúmlega 30 keppendur og mikið fjör.Úrslit mótsins eru: Hér  Kristján Hauksson vann bikarinn í 8. sinn, Þess má geta til gamans að Jónína, Tinna og Kristján Már, börn Kristjáns og Helgu, unnu öll bikar :)    Og svo brá Stórfrænkan sér í fjallið og myndaði hressa krakka á öllum aldri á skemmtilegu svigmót í Tindaöxl.Þar voru rúmlega 30 keppendur og nokkrir Gaurar í sérflokki.  Úrslit mótsins eru: Hér Sjóarinn var í fríi í mars og fórum við tvær ferðir í borg óttans, sú fyrri var tónleikaferð. Kolbeinn bróðir minn lét þann draum rætast að ganga í karlakórinn Stefnir og bauð okkur miða á afmælistónleika, Þar komu fram stjörnur eins og Kristinn Sigmundsson og Þórunn Lárusdóttir, já og Kolli bróðir ásamt kórnum. Alveg meiri háttar tónleikar Við fórum svo aftur suður í lok mars og nú var það Siggi Fjólu og Óla sem var 50 ára og bauð til veislu.Þar var etið, drukkið, spjallað, hlegið, og eytt kvöldinu með virkilega skemmtilegu fólki.Takk kæra fjölskylda fyrir okkur.  Á sunnudeginum 28.mars fórum við í fermingarveislu hjá Rögnu Rós og Gunnari í Mosó, það var hún Elín Aðalsteina fallega frænka mín sem var að fermast. Já tíminn líður aldeilis, mér finnst svo stutt síðan að ég fékk senda mynd af henni þegar hún var 2ja ára!! Og það var nú aldeilis frábært að hitta alla ættingjana sem mættu þar.Skemmtilegast við þessar suðurferðir er auðvitað að hitta yndislegu barnabörnin okkar, þau Ægir Óla og Karítas Rún. Okkur finnst við aldrei sjá þau nógu oft, en gleðjumst yfir hverri stund sem við eigum með þeim.Karítas Rún varð 6 ára í byrjun apríl og fer í skóla í haust og Ægir Óli í 3ja bekk!!Ég var svo heppin að hitta litla gullmolann Natan Árna, Hildar og Ágústsson, þegar hann var í heimsókn og tepptist í firðinum fagra! Stórfrænkan hafði ekki séð þessa elsku síðan um áramótin, og það var nú aldeilis tekið nokkrar myndir.Og svo eru nokkrar myndir sem ég tók í páskahretinu, og svo nokkrar skemmtilegar sem ég tók úr framsætinu í bílnum á leið norður, ég tek það fram að Ægir var að keyra :)já það er nokkuð skemmtilegt að sjá hvað er hægt að gera á rúmlega 90 km hraða!!</description>
Öskudagur í Ólafsfirði 17. feb. 2010
      <description>Það er alltaf jafngaman á Öskudaginn, alveg sama hversu gamall maður verður!Stórfrænkan og Vinkonufrænkan kíkkuðu á Leikhóla í morgunkaffitímanum. Við vorum smá óheppnar því að krakkarnir voru búin "að slá poppið úr tunnunni", en þau tóku vel á móti okkur og vildu endilega láta mynda sig.                                  Krakkarnir voru í skólanum fram að hádegi og svo byrjaði fjörið kl. 1, Þá komu allskonar kynjaverur og sungu fyrir okkur í vinnunni.                                                                                                                Stórfrænkan og Vinkonufrænkan voru ánægðar með lagavalið í ár, fjölbreytt og skemmtileg lög og tilþrifin hjá sumum alveg frábær.Og litlu frændurnir mínir skemmtu sér rosalega vel þegar þessir furðulegu skemmtilegu krakkar sungu.  Svo var kötturinn sleginn úr tunnunni í Íþróttahúsinu og margir vildu fá verðlaunin og baráttan var mikil.                  Sigurvegari var Eydís Ásta Magnúsdóttir í 3. bekk. Allskonar leikjabrautir voru fyrir krakkana og svo var farið í leiki.                                                                  Haukur risaeðlustrákur og Karen bjöllustelpa  Auði G. fannst best að vera með Marín kisu                með mömmu íþróttaálfifimleikasnúllan Birnu Agnars      Svava Rós blómaálfur            Anita spiderstelpa    Rögnvaldur Ironman                 Lady  Ólína Gaga                Björgvin skrýmsli  Allir skemmtu sér og er óhætt að segja að öskudagurinn hafi verið frábær.Já og ef að þið væruð ekki svona dugleg að grímubúast, koma í bæinn og syngja og koma svo saman í Íþróttahúsinu, ja, þá væri nú ekki mikið varið í öskudaginn!!                              Takk fyrir daginn krakkar!!</description>
Alltaf eitthvað að gerast hjá Stórfrænkunni :-)
      <description>Janúarmánuður var nokkuð rólegur hjá STórfrænkunni, já svona svipaður og veðrið, engin stórátök eða læti  Allir farnir heim til sín eftir jólafrí og Ægir minn fór í norsku, þar gekk veiðin mjög vel og voru þeir komnir heim alveg mátulega til að koma á frábæra þorrablótið hjá kvenfélaginu í lok janúar. Þá var bara að dunda sér við að taka niður jólaskrautið, skreppa í ræktina, fara í góða göngutúra og auðvitað í vinnuna. Ég var nú ekki neitt sérstaklega dugleg að taka myndir og þó,........ Leiftur-Dalvík (yngsti flokkur).ég skrapp í íþróttahúsið og horfði á skemmtilegan fótboltaleik     Það voru mörg skemmtileg tilþrif sem þau sýndu þessi efnilegu fótboltakrakkar í báðum liðum     Þorrablót eldri borgara 22.jan.Stórfrænkan varð mjög kát þegar mamman hringdi og bauð á þorrablót eldri borgara. Það er alltaf svo gaman að eiga góða kvöldstund með eldri borgurum, borða góðan mat og njóta skemmtidagskrárinnar, já og taka nokkur dansspor.     Friðrik Gylfi Traustason (á Gásum) var ræðumaður kvöldsins og var alveg hrikalega skemmtilegur Mér skilst að hann hafi verið ráðinn um ókomin ár, og svo var að sjálfsögðu sungið mikið, bæði kór eldri borgara og svo við hin,þannig að það er eins gott að mamma haldi áfram að bjóða okkur á blót!!    Söngkeppni Grunnskóla Ólafsfjarðar fór fram í Tjarnarborg 4. febrúar. Stórfrænkan mætti á staðinn til að mynda og naut þess að hlusta á alla þessa efnilegu krakka sem komu fram.  Takk krakkar fyrir frábæra skemmtun!Úrslit voru eftirfarandi:    Einsöngur:1. Guðrún Stefanía, 9. bekk2. Embla Björk, 2. bekk 3. Halla Björg, 4. bekk 3. Sandra Karen, 10. bekk   Hópsöngur:1. Gabríela Rós og Vala Karen, 3. bekk2. Hólmfríður og Guðrún Fema, 3. og 4. bekk3. Sigríður Alma, Erla Marý og Ester Sól - allar í 6. bekk.Besta atriði:Sigríður Alma, 6. bekk.      "The Age of Aquerius Ólöf 50 ára"Stórfrænkan flaug í borg óttans með Stelpuna og Uppáhaldsfrænkuna, og var mætt í flower power-hippapartý hjá Ólöfu systir sem varð 50 ára þann 6. febrúar. Þrátt fyrir að vakna með hæsi, hósta og hitaslæðing, þá var bara málað yfir það, klætt sig í hippadressið og notið kvöldsins með skemmtilegu fólki sem var mætt til að gleðja hippaskvísuna Ólöfu.      Takk elsku systir fyrir frábært kvöld. Stórfrænkan tók að sjálfsögðu fullt, fullt af skemmtilegum myndum af stórmyndarlegum hippum og flower power fólki í gleði, gleði!     Og hippamamman með hippaskvísurnar sínar  Stórfrænkan á stundum ekki til orð yfir litadýrð almættis, og lætur fylgja nokkar myndir sem eru teknar í janúarblíðunni . Glitský og furðuskýjamyndir.     Fallegt við Ólafsfjarðarvatn    </description>
Jól og áramót Í Hrannó nr. 15 í Ólafsfirði 2009--2010  
      <description>Gleðilegt nýtt ár !!!Elskulega fjölskylda mín, systkini, ættingjar og vinir og þið sem eruð svo dugleg að kíkka inn á síðuna mína.!!Sjóarinn tók upp á því fyrir nokkrum árum að vera í fríi í des. mér til mikillar ánægju, því allt sem snýr að jólaskreytingum, er hans deild. Og hann nýtur þess svo sannarlega að setja upp seríur úti sem inni, og henda svo í nokkra tertubotna og laga heimatilbúinn ís á milli. Og svo sér hann að sjálfsögðu um alla eldamennsku um yfir hátíðarnar. Strákarnir vaska svo upp á aðfangadag.  Kolli og Atli Þór voru mættir á svæðið á Þorlák, og Ásdís María eyddi aðfangadagskvöldinu hjá okkur en Jón borðaði á Ak. hjá foreldrum sínum, og kom svo seinna um kvöldið.Á Jóladag var hefðbundið matarboð í Gunnó nr. 10 þar er semsagt mikið borðað, mikið talað, spilað á hljóðfæri og mikið hlegið....... að sjálfsögðu  Ólína Ýr og Ólöf María flottar ..... Ólína Ýr að reyna að kenna Stórfrænkunni!!  Það voru fagnaðarfundir þegar Óli og fjölskylda komu norður 29. des. og var þetta besta jólagjöfin sem við fengum, að fá að hafa þau yfir áramótin. Þetta er í fyrsta skipti í mörg ár, að allir krakkarnir okkar eru heima á Gamlárskvöld. Það var ýmislegt gert, farið á Gullatúnið, í hesthúsin, í heimsóknir, í heita pottinn a.m.k. 1x á dag,. Það var leyfilegt að vaka langt fram á nætur og sofa þá bara aðeins lengur. Mikil eftirvænting var þegar "sprengjudótið" fór að safnast fyrir í bílskúrnum í Hrannó nr. 15. Óli Mey og Baldvin Orri komu með sprengjur í kassavís, og pabbinn og afinn voru nú búnir að versla eitthvað smávegis... Þá var farið á brennuna og horft á flugeldasýninguna og nutum við þess að horfa á í góðu veðri. Síðustu 20 árin hefur Stórfjölskyldan verið á Hornbrekkuvegi 12 en nú var kominn tími á að breyta hefðinni. Við ákváðum systkynin að hver fjölskylda borðaði heima hjá sér og síðan kæmu allir í Hrannó nr. 15 eftir brennu, í áramótapartý. Yngsta kynslóðin framleiddi þvílíku hljóðin, og maður spyr sig; Hver fann upp þetta ýludót????Kvöldið var yndislegt, við vorum rúmlega 30 manns og mikið sprengt, mikið spjallað og hlegið,trallað, borðað og drukkið og þegar unga fólkið fór á Höllina, þá spiluðum við eldra liðið ...... Kollgátuna fram undir morgun.Sjóarinn minn fór svo í "norsku" 2. jan. og reikna ég ekki með því að þeir komi heim fyrr en í febrúar. Óli minn og fjölskylda fóru suður 3. jan. og það er skrítið að vera allt í einu ein heima.. EN svona er lífið, ég finn mér alltaf eitthvað að gera, þá er tíminn fljótur að líða.Ég fann loksins þreksalinn eftir 6 mán. pásu, byrjaði í prógrammi með Sólveigu, þannig að það verður tekið almennilega áð'í, úújeeee....enda búin að "endurholdgast" miklu meira en  nóg !! (..þýðir að þyngjast á petrísku .... Kollgátan sko!!)  Veðrið hefur verið ótrúlegt hér í firðinum fagra í desember, varla hægt að tala um snjó hvað þá vont veður. Stórfrænkan fór á göngu með vélina á fallegum degi þá var frostið um -10° , fékk fallegar eplakinnar og fallegar myndir   </description>
Aðventan og jólaundirbúningur 2009
      <description>Síðasta helgi var yndisleg, og mikið að gera. Jólaundirbúningur á fullu heima hjá mér, og er Sjóarinn aldeilis í essinu sínu þessa dagana. Hann er búinn að koma öllum jólaseríum upp, tja.. allavega þær sem eru til á heimilinu. Kannski bætir hann við....... hver veit. Brosir út að eyrum þessi elska, þegar hann er að taka jóladótið upp úr kössunum, og dreifa því bæði úti og inni !!  v\:* {behavior:url(#default#VML);} o\:* {behavior:url(#default#VML);} w\:* {behavior:url(#default#VML);} .shape {behavior:url(#default#VML);}       Normal   0         false   false   false                             MicrosoftInternetExplorer4             /* Style Definitions */  table.MsoNormalTable  {mso-style-name:"Table Normal";  mso-tstyle-rowband-size:0;  mso-tstyle-colband-size:0;  mso-style-noshow:yes;  mso-style-parent:"";  mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;  mso-para-margin:0cm;  mso-para-margin-bottom:.0001pt;  mso-pagination:widow-orphan;  font-size:10.0pt;  font-family:"Times New Roman";  mso-ansi-language:#0400;  mso-fareast-language:#0400;  mso-bidi-language:#0400;}                                                       Stórfrænkan fór á tvenna tónleika, í kirkjunni okkar voru aðventutónleikar með kirkjukórnum og gestasöngvurum, og tónlistarfólki.  Þvílíkir tónleikar! Það sem við eigum mikið af listamönnum í firðinum fagra.   Ég á bara ekki til orð til að lýsa því hvernig mér leið, er bara full af þakklæti fyrir að fá að njóta svona yndislegrar kvöldstundar. Takk kærlega fyrir mig    Það var mikil eftirvænting hjá okkur hjónum þegar við lögðum af stað á Akureyri á sunnudeginum. Fórum út að borða á Strikinu og svo voru það Frostrósartónleikarnir í Höllinni. (tekið af síðu Frostrósa: www.frostrosir.is)Þvílíkir tónleikar, Hera og Margrét eru alveg magnaðar komu út bæði tárum og gæsahúð já, og Friðrik Ómar, þessi elska, þegar hann söng Ave Maria. VÁvá.  já,allir, söngvarar,tólistarmenn og kórarnir voru frábærir, og að sjálfsögðu ætlum við að tryggja okkur miða að ári.Stórfrænkan ætlar að halda áfram að njóta aðventunnar með Sjóaranum sínum og hér er uppáhaldsaðventumyndin mín.</description>
Jólabærinn okkar Ólafsfjörður 28. nóv. 2009
      <description>Í byrjun nóv.var haldinn fundur með hinum ýmsum félögum og samtökum þar sem kynntar voru hugmyndir um lítil jólahús, sem yrður reist sunnan við Tjarnarborg.  Hér í firðinum fagar var fólk beðið um að skreyta snemma í ár, og tóku bæjarbúar vel í það og um miðjan nóvember voru jólaljósin farin að sjást utan á húsum. Ekki voru nú allir jafnhrifnir að þessu uppátæki, en það er nú bara allt í lagi.     Og 28. nóv. var bærinn mikið skreyttur, jólamarkaður hófst í og við Tjarnarborg, þar sem jólahúsin voru vígð og kveikt á jólatrénu okkar. Það var gleðilegt að sjá hversu margir komu í jólabæinn þenna dag og mikil stemning úti sem inni.Jón Hrói og Anna voru með þessar dýrindis heitu hunangsristuðu jólamöndlurStórfrænkan hefur ekki verið dugleg að blogga eða setja inn myndir síðustu vikurnar, en tekið fullt af myndum!, bæði hér i sveitinni og svo í fjörunni, já ég fæ aldrei leið á þessum stöðum.Krakkar úr Grunnskóla og Leikskóla sungu nokkur falleg jólalög.Stórfrænkan tók upp á því að bregða sér til Danaveldis um miðjan nóv. til að heimsækja mína elskulegu Helgu Lunu og familie ójá!!  Hafði þessa fínu ferðafélaga þau Dísu og Guðna sem voru að fara til Fjólu sinnar og familiu. Og það er alveg óhætt að segja það og skrifa að þessi Danmerkurferð er ógleymanleg, við fórum í göngutúra, verslunarferð, skoðunarferðir,   afmælisferð til Arhus,Fjóla var 40 ára, 17. nóv.Óvissuferð sem var kanósigling niður Óðinsvéá í dásamlegu veðri en endaði öðru vísi en áætlað var....  en halló.... þetta var óvissuferð!!(leiðin á Frøbjerg á Fjóni) Í október sýndi Leikfélag Ólafsfjarðar Bar-Par eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar (Gumma Fjólu). Mjög góð aðsókn var á sýningarnar Stórfrænkan fór tvö kvöld og myndaði. Á generalprufunni þurfti Garðar Guðmunds að skreppa á fæðingardeildina með Stínu, þannig að Gummi sjálfur varð að taka af sér nokkur hlutverk!! Hann þekkir þau dável, því hann lék öll karlmannshlutverkin hérna um árið þegar BarPar var sett upp í Borgarleikhúsinu. Freyja og Lena Konráðs og Siggudætur létu skíra litlu prinsana sína heima á Hlíðarveginum og var það Jóna Lísa frænka þeirra sem skírði þá á afmælisdag Mumma langafa.  Mikið fjölmenni var við skírnina, tengdafólkið Lenu kom að austan og tengdafólkið Freyju frá Ak., og svo ættingjar og vinir hér í bæ. Var veislan hin glæsilegasta.Ágúst Kolbeinn bróðursonur minn og Hildur eignuðust lítinn prins 11.október   og 21.nóv. var hann skírður Natan Árni. Til hamingju fallega fólkið mitt :)Ég fór í heimsókn 30. okt. og smellti nokkrum á þessa elsku  :))Og í lokin á þessari færslu eru nokkar myndir af skemmtilegu fólki</description>
Haustlitir í Ólafsfirðið og ´56 árgangurinn kom saman í sept.2009
      <description>Jahá!! það var nú allt hvítt í morgun, og þurfti Stórfrænkan að láta ýta aðeins bílnum til að komast í vinnuna á sumardekkjunum!!Stórfrænkan hafði það virkilega gott í september. Sjóarinn var í fríi dekraði við frúna og Dóttirin flutti að heiman með kærastanum, og búa þessar elskur í "bláu blokkinni" Og við njótum þess að vera ein í kotinu, það var virkilega yndislegt að hafa þau hjá okkur, en það er gott þegar unga fólkið það fer að búa út af fyrir sig, og bjóða okkur svo í mat, já gaman af þessu!Ég hef verið að skanna allskonar myndir sem margir hefðu gaman af, að skoða og endilega skrifið við myndirnar t.d. hver er á þeim, og ég set svo rétt nöfn ef svo ólíklega vill til að þið skrifið ekki réttu nöfnin.! Ég ætla að halda þessu áfram í vetur og verða þessi albúm undir "Gamlar myndir"     Svo var komið að því að skreppa í borg Óttans. ´56 árgangurinn ætlaði loksins að hittast!                              56árg. ca '64-65 og 1988    Við höfum nú ekki verið mjög dugleg við það, kannski af því að við erum svo mörg sem búum hér í firðinum fagra, og hinir eru nokkuð duglegir við að koma í heimsókn.! Við hittumst hjá Brynju í Hafnarfirðinum, hún bauð uppá yndælis súpu og bakkelsi  sem við gerðum góð skil.  Svo var nú farið að rifja upp sögur frá skólaárunum og margt annað skemmtilegt, og það var mikið hlegið.  Við fórum í kirkjugarðinn og settum rósir á leiði skólafélaga okkar og vinar, Ómars Addýar og Bjössa. En hann var svo sannarlega með í sögum okkar þennan dag og kvöld og minning um þennan góða dreng mun alltaf  lifa með okkur. '56 árg. fór í heimsókn á Alþingi.  Fengum leiðsögukonuna, Berglindi Steins semfræddi okkur um ýmislegt á meðan við skoðuðum húsið og var það mjög gaman, Ekki skemmdi það fyrir að Stórfrænkan þekkir hana vel, í gegnum vinnuna. Við áttum svo saman góða kvöldstund í sal Fríkirkjusafnaðarins.  Þar borðuðum við góðan mat, spiluðum og sungum, skoðuðum myndir og töluðum mikið og hlógum ennþá meira. Elskulegu bekkjafélagar og vinir, takk fyrir frábæra samveru.  Og það líða EKKI 16 ár þar til við komum saman næst... ÓNEI. Eins og þið vitið sem komið reglulega inn á síðuna mína, þá hef ég óskaplega gaman af því að mynda fjörðinn minn fagra,  já í hvaða veðri sem er, EN ég verð þó að viðurkenna að haustið er í algjöru uppáhaldi hjá mér.   Ég á orðið mikið af fallegum myndum sem ég hef bara ekki haft tíma til að yfirfara, en það er nú allt í lagi, ég set þær inn í rólegheitunum.</description>
Réttardagur í Ólafsfirði 19.sept. 2009
      <description>Réttað var við Kálfsá í gær og Stórfrænkan fékk sér rúnt í sveitina. Veðrið var yndislegt, og haustlitirnir fallegir í fjöllunum.Margir voru mættir í réttirnar og höfðu gaman af, að skoða, og hitta aðra og spjalla.Unnsteinn og Jón Frímann                            Þyrý, litla hennar Gyðu með Stebba afa Sauðfé hefur fjölgað í firðinum og eru það Frístundabændur svokallaðir, sem voru mættir við Kálfsá. Hallur og Baldur                                               Dísa og Guðni Gummi,Eggert og Óli Hjálmar                        Kristín, Berglind og ? Allir voru kátir en þreyttir enda búnir að ganga síðustu 3 daga um fjöll og firnindi.Endilega skoðið myndirnar frá réttunum, þær segja allt sem þarf.</description>
Ólafsfjörður og nágrenni, já og haustveðrið 
      <description>ÓF-1 kom í land í lok ágúst eftir rúmlega mánuð í Barentshafi, og Sjóarinn minn er kominn í frí. Óli og fjölskylda komu norður og ætluðu nú aldeilis að vera í berjamó. En veðrið var nú ekki mjög spennandi, rigning og kuldi og lítið hægt að tína ber.  En það var þá bara verið í pottinum og gert margt annað skemmtilegt. Pollý frænka, og dætur hennar,Fjóla Jóna og Stína (og Fjóla dóttir hennar).. Skruppu í helgarferð í fjörðinn fagra, gistu í bústað.  Auðvitað var boðið í mat í Hrannó, síðan farið í heimsókn í bústaðinn. og fleira gott fólk kíkkaði í heimsókn. Já það var sko var mikið talað, og mikið hlegið þetta kvöld. Yndislegt að hitta þessar eldhressu stelpur.. En veðrið er kannski ekki búið að vera neitt æðislegt en heldur ekki slæmt. Því þegar ég er að skoða myndirnar mínar þá er það búið að vera mjög fjölbreytt.Stórfrænkan er búin að skreppa í berjamó í sól og yndislegu veðri, fór fram að Reykjum og skreið um og tíndi ber og myndaði, og naut þess að vera úti.  Jómbi berjakóngur  Dásamleg litadýrðin þessa dagana heilla mig gjörsamlega, og er ég búin að fara ófáar ferðir í sveitina, og Múlann.Ég þurfti að fara á Akureyri og lenti í alveg ótrúlegu veðri.  Það var rigning, það var sól, það voru regnbogar, það var logn og það var rok..... Já þvílíkt dásemdarfjölbreytni..Á Akureyri var sól og 16° hiti og þvílíku haustlitirnir..Svo nú er Stórfrænkan farin að hljóma nákvæmlega eins og veðurfræðingur!!En ég kíkkaði líka í heimsókn til Diljá rétt til að knúsa Helgu Lunu og litla fallega frænda minn sem fæddist í júlí.Leiftur/KS spilaði við Hamar sl. laugardag og töpuðu leiknum 2-3 Leikurinn var oft skemmtilegur, en Hamarsmenn voru grimmari og greinilega að bjarga sér frá falli með því að ná í 3 dýrmæt stig .Þorri með snilldarmarkvörslu!!Nú er fullt af nýjum myndum, endilega kíkka í albúmin og gaman ef þið látið nú vita af ykkur, sem eruð svona dugleg að skoða hjá mér, :)</description>
Ólafsfjörður, berjadagar ofl. í ágúst 2009
      <description>Það sem við höfum nú fengið margbreytilegt veður í ágúst, sól, rok, rigning, logn, hiti, snjór!!  Ég er nú svo heppin að vera nokkuð sátt með allskonar veður, því það er hægt að skoða umhverfið okkar og gaman að mynda fjölbreytileikann..Já og ég er nú nokkuð viss um að Grikkir allavega öfunda okkur af veðrinu.Algjört logn við vatnið                                                                Það snjóaði í fjöllin Dásamlega fjaran á sólardegiFjóla Guðna og Jean Schmidt komu frá Danmark, til að skíra yngsta barnið. Hann heitir því fallega nafni: Jonas Meyvant Schmidt.Þau eiga líka Jóakim Ósmann og Moniku ÁsdísiFrænkurnar mínar Freyja og Lena eignuðust fallega drengi í ágústBerjadagar voru 21.-23. ágúst Skemmtileg stemmning myndaðist þegar berjamarkaðurinn byrjaði í leikfélagshúsinu  í góða veðrinu á laugardeginum, og Garún og Kristjana voru með opnar vinnustofur sínar.      Spilmenn Ríkíníser lítil fjölskylduhljómsveit sem leikur forna íslenska tónlist á  hljóðfæri sem til voru hér á landi fyrr á öldum, svo sem langspil, gígju, hörpu og lýru, svo eitthvað sé nefnt.  Meðlimir Spilmanna Ríkínís á Berjadögum eru þau Ásta Sigríður Arnardóttir, Halldór Bjarki Arnarson, Marta Guðrún Halldórsdóttir og Örn Magnússon. Þau spiluðu í Leikfélagshúsinu og á vinnustofum listakvenna.Á vinnustofu Garúnar                                                                                          Á vinnustofu KristjönuJón Þorsteinsson og Eyþór Ingi eftir yndislega tónleika í kirkjunniStelpan okkar hún Ásdís María var 21 árs í gærVið fórum út að borða í tilefni dagsins á Brimneshótel, í góðra vina hópi  Og Óf 1 er loksins á leið í land eftir tæpa 5 vikna túr í rússnesku og norsku, mikið verður nú gott að Sjóarinn minn fer í frí  </description>
Fiskidagurinn mikli á Dalvík 8. ágúst 2009
      <description>Það er ótrúlegt hvað við Íslendingar erum dugleg að skemmta okkur og öðrum, þrátt fyrir kreppu! Það eru bæjarhátíðir og íþróttamót út um allt. Við getum bara skoðað Norðurland í byrjun ágúst. Síldarævintýrið á Sigló, við Sæbba systir fórum þangað á laugardeginum, Ein með öllu á Akureyri,  ég skrapp þangað á brekkusönginn.  Og Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki, krakkarnir okkar stóðu sig mjög vel þar.!   Svo um síðustu helgi var Fiskidagurinn mikli á Dalvík, ég fór á hið fræga súpukvöld, og þvílíkur fjöldi sem var á röltinu um bæinn, og allir brosandi, ég hitti svo mikið af fólki sem ég þekki, alveg yndislegt           Börnin Olgu og Sigga               Mæja og Addi                                              Árni Johnsen var með fjöldasöng í Hólagötunni   Fékk æðislega súpu hjá nöfnu og Óskari þau voru með sökkvandi þjóðarskútuna í garðinum!   Svo var drifið sig á fiskidaginn sjálfan um hádegið og myndað allan daginn,. Almættið hélt sig við það að hafa góða veðrið á þessum degi.  Sölkukonur alltaf jafnglæsilegarNígerísku gestirnir fengu viðurkenningu Og ég segi það og skrifa að flugeldasýningin á Dalvík er sú flottasta sem ég hef séð á ævi minni!!! Og ég trúi því, að þetta sé flottasta sýning sem hefur verið á Íslandi! Það er talað um að um 30.000 manns hafi verið á Dalvíkinni, Ég hefði giskað á svona 15.000 manns   og allt fór fram með ró og spekt, þessa daga þrátt fyrir gífurlegan mannfjölda. Það voru Swing-tónleika- og danshátíð í Tjarnarborg, og það hefðu miklu fleiri mætt þangað ef  þessi viðburður hefði verið á öðrum tíma en Fiskidagshelginni.  Ég og Geir Hörður drifum okkur á Swingið og tókum okkur bara nokkuð vel út á gólfinu. Það var líka svo skemmtilegt að horfa á fólkið dansa. Svo hafa margir foreldrar farið með börnum sínum á  Pæjumót á Sigló, og á  Króksmótið. Handverkssýningin á Hrafnagili þar var metaðsókn og verst að ég skyldi ekki drífa mig þangað, Já maður má nú hafa sig allan við til að taka þátt . En það er virkilega gaman hvað fólk er duglegt að fara á alla þessa viðburði. Og það eru engin rólegheit framundan, ónei, þeir sem vilja geta svo sannarlega fundið sér eitthvað að gera. T.d. um þessa helgi eru ættarmót, bekkjamót og fótboltaleikur. Þá er Leifturshátíð, endilega skoðið þetta: Dagskrá LeiftursævintýrisinsÞað eina sem vantar í fjörðinn okkar í dag er blessuð sólin og á ég von á henni núna um miðjan ágúst,,,,,,,,,, þar til annað kemur í ljós  Og að sjálfsögðu eru fullt af nýjum myndum endilega kíkkið í albúmin  </description>
Sumarið hjá Stórfrænkunni og fjölskyldu.
      <description>Stórfrænkan hefur ekki bloggað í rúman mánuð.... Gott bloggsumarfrí hjá mér!! En ég fór nú ýmislegt skal ég segja ykkur í stuttu máli,og myndaði alveg grilljón eins og táningarnir segja.      Ég fór í gönguferð í Fossdalinn, ég fór í sumarsólstöðugöngu upp á Múlaplan, ég fór á Blúshátíðina, á tónleika í kirkjunni og síðan á laugardagskvöldinu.       Ég var á Kleifum þegar þeir hleyptu á stífluna. Ég fór á MXbikarmót í torfærubrautinni hérna og skemmti mér hrikalega vel við myndatökur þar, þrátt fyrir kríuárásir :-)   Svo kom Sjóarinn minn í land og þá fórum við í sumarbústað í Húsafell. Þar var sól og sumarylur alla daga og hitinn fór aldrei niður fyrir 15°. Við gengum Bæjargilið og upp að rótum Oks, og gengum í Odda,við keyrðum um Borgarfjörðinn, við fórum í Surtshelli, við fórum upp að Langjökli og keyrðum Kaldadal. Við skruppum í Hvalfjörðinn og fylgdumst með þegar var verið að skera hval. Kolli okkar vinnur í hvalstöðinni og líkar mjög vel. Þá var skroppið einu sinni í Borgarnes. Óli okkar og fjölsk. komu og gistu hjá okkur, Sæbba, Jói og Ólína líka. Mikið var það gaman. Og svo var nú grillað og borðað góðan mat og notið þess að vera saman. það fylgir jú í fríum er það ekki?? (Á eftir að setja inn myndir úr ferðinni) Við keyrðum beint á Snæfellsnes frá Húsafelli, því næst á dagskrá var ættarmót hjá Afkomendum Ólínu og Jóakims.  Og veðrið gat ekki verið betra. Stórfrænkan og Sjóarinn voru snemma á ferðinni og fóru á Arnarstapa og Hellnar. Við erum lengi búin að tala um að fara og skoða nesið og loksins voum við mætt á svæðið.Og þar er sko aldeilis hægt að taka myndir  Og á Arnrstapa fengum við okkur kaffi og ákváðum að fara á Snæfellsjökul, ójá.... við leigðum okkur snjósleða og skröltum upp þennan þá þvílíka fjallveg upp að snjólínu.  Sjóarinn varð svo að gjöra svo vel og keyra sleða í fyrsta sinn og beint á toppinn með sína kæru  Þvílík upplifun og útsýni!  Eftir þennan góða dag þá var brunað á Eldborg og hitt ættingja og vini.   Það mættu rúmlega 100 manns og var virkilega skemmtilegt og enn lék veðrið við okkur. Barnabörnin fóru svo með okkur norður á sunnudeginum. Það fór nú heldur betur að lækkandi hitastigið á leiðinni norður. En við drifum okkur samt í pottinn og vorum voða glöð að vera komin heim aftur. Þeim leiddist nú ekkert þótt amma þyrfti að vinna, því afi og Ólína sáu um þau á meðan. Svo var nú Nikulásarmótið og fylltist bærinn af fólki. Og er það alltaf jafngaman að sjá allan þennan fjölda sem kemur, keppendur, foreldrar og aðra sem hafa gaman af því að fylgjast með þessum efnilegu krökkum sem eru að spila fótbolta.Ég var svo að mynda aðeins á laugardag og sunnudag. Myndir frá mótinu eru á NIKKI.is    Við skruppum á Akureyri á tónleika með Guðrúnu Gunnars á Græna hattinum. Hún var að gefa út disk með lögum Cornelis Vreeswijk og var Aðalsteinn Ásberg, sögumaður og tveir sænskir tónlistarmenn og tveir íslenskir þeim. Og kvöldið var alveg meiri háttar! Guðrún er jú ein af okkar bestu söngkonum og í miklu uppáhaldi hjá mér.  Það er svo mikið um að vera á næstunni: Tónleikar á Græna hattinum, Síldarævintýrið á Sigló   Ein með öllu á Akureyri, Fiskidagurinn mikli á Dalvík, Handverkshátíð á Hrafnagili, Berjadagar í Ólafsfirði já, og svo er Swingdans- og tónlistarhátíð í Tjarnarborg Ólafsfirði  7. og 8. ágúst!! Það er erfitt að velja, en ég er samt ákveðin í að fara á sem flest af þessu Nú eru Óli og fjölsk. farin suður og Sjóarinn og tengdasonurinn farnirí "rússnesku". Stórfrænkan og Stelpan eru því einar enn á ný .</description>
Grímupartý Helgu Lunu 13.júní 2009
      <description>Glens, gaman og mikil gleði ríkti í firðinum fagra um helgina. Stórfrænkan var boðin í tælenska hlaðborðið á Hótelinu og þar voru allskonar kynjaverur hverjar öðrum fegurri.Síðan var haldið í Grímupartýið í Tjarnarborg þar sem ýmislegt skemmtilegt fór fram og Sniglabandið skrapp á svið annað slagið og allir voru þvílíkt glaðir og í hrikalega miklu stuði.Elsku Helga Luna, enn og aftur til hamingju með 50 árin þín því eins og spakmælið segir:Afmælisdagar eru góðir fyrir þig - því fleiri sem þú  átt, því lengur lifirðu. </description>