|
STÓRfrænkan GuruGuru Gæði mannlífs eru ekki fólgin í fjölda þeirra sem búa á sama stað, heldur í því samfélagi sem fólki tekst að byggja upp í kringum sig. |
|
Færslur: 2011 Ágúst23.08.2011 23:15KF-ÍH á Ólafsfjarðarvelli 20. ágúst 2011Fjórði heimasigur KF í röð Nú um helgina tóku strákarnir í meistaraflokki KF á móti ÍH. Fyrirfram var búist við nokkuð þægilegum leik fyrir heimamenn þrátt fyrir að Ingimar og Kristján væru í leikbanni. Það virtist líka ætla að verða raunin því okkar drengir komust í 3-0 eftir um klukkutíma leik. Þórður Birgisson heldur áfram að skora ![]() og gerði sitt 8. mark á tímabilinu þegar hann kom KF yfir á 33. mínútu. 2-0 var svo staðan eftir 33. mínútur þegar ÍH menn skoruðu í eigið mark eftir hornspyrnu. Sigurbjörn skoraði svo sitt 4. mark í sumar á 56. mínútu. ![]() ÍH menn komust reyndar inn í leikinn með tveimur mörkum á 73. og 85. mínútu og var farið að fara um leikmenn og áhorfendur. ![]() En sem betur fer komust þeir ekki nær okkar mönnum og fjórði heimasigur KF í röð staðreynd. ![]() Halldór markvörður KF var borinn út af vellinum rétt fyrir leikslok ![]() ![]() 2. deildinn hefur aldrei
verið eins jöfn og nú. Til marks um það eru níu lið sem eiga ennþá góðan
möguleika á að fara upp um deild þegar aðeins fjórir leikir eru eftir.
KF er með bestu markatöluna en er samt bara í 8. sæti, sem segir kannski
aðeins til um að okkar drengir hafa verið frekar óheppnir í mörgum
leikjum, þá sérstaklega í byrjun sumars. Fyrirliði KF, Milos Glogovac skrifaði undir nýjan samnig eftir leikinn Stöðuna í deildinni má sjá
hér að neðan, en það er alveg ljóst að ætli okkar strákar sér að fara
upp um deild þá mega þeir ekki misstíga sig í þeim fjórum leikjum sem
eftir eru, en þeir eiga eftir að spila við Reyni S (úti), Árborg
(heima), Tindastól (heima) og Hött (úti). Texti og tafla: Þorvaldur Þorsteinsson thorvald@vis.is Myndir:Guðný Ágústsdóttir Skrifað af GuðnýÁg 16.08.2011 13:02KF-Völsungur 8. ágúst á ÓlafsfjarðarvelliUmfjöllun tekin af Fotbolti.net: KF sigraði Völsung í mögnuðum markaleik KF 7 - 4 Völsungur: 1-0 Gabríel Reynisson 2-0 Sigurbjörn Hafþórsson 3-0 Þórður Birgisson 4-0 Þórður Birgisson 4-1 Arnþór Hermannsson 4-2 Elfar Árni Aðalsteinsson 5-2 Þórður Birgisson 6-2 Gabríel Reynisson 6-3 Bjarki Baldvinsson 6-4 Sjálfsmark 7-4 Halldór Logi Hilmarsson KF tók á móti Völsung á Ólafsfirði í gærkvöldi, við hreint út sagt frábærar aðstæður, smá golu og frábærum Ólafsfjarðarvelli, sem hefur væntanlega sjaldan eða aldrei verið betri. KF vann fyrri leikinn á Húsvík 2-0 og Völsungar vildu væntanlega hefna fyrir þau úrslit. En það var ekki að sjá á þeirra leik í upphafi að þeir ætluðu sér það. Strax eftir hálftíma leik var staðan nefnilega orðin 4-0. ![]() Heimamenn byrjuðu leikinn að mikilli hörku og áttu þeir grænklæddu í miklum vandræðum með sóknarmenn heimamanna, þá sérstaklega Gabríel Reynisson og Þórð Birgisson Það var einmitt Gabríel sem skoraði 1. mark heimamanna strax á sjöundu mínútu. Hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn gestanna frá Agnari Sveinssyni og var á undan Kjartani Páli, markmanni Völsunga, í boltann og renndi honum í autt markið. ![]() Heimamenn voru ekki lengi að bæta við öðru marki, því Kjartan fékk sendingu aftur, sem Þórður Birgisson elti og Kjartan hreinsaði frá en boltinn fór í Þórð og upp í loftið sem endaði með því að Sigurbjörn Hafþórsson skallaði boltann nánast á marklínu innfyrir mark gestanna og staðann orðinn 2-0 eftir 15 mínútur. Gestirnir virkuðu mjög sofandi og náðu lítið að skapa sér fram á við. ![]() Þórður Birgisson skoraði síðan sitt fyrsta mark þegar um 30 mín voru liðnar af leiknum, þá komst Þórður ein í gegn um vörn Völsunga, eftir að hafa hlaupið af sér varnarmenn Völsungs og setti boltann fram hjá Kjartani. Vörn gestana virkaði mjög óörugg í fyrrihálfleik, þó var Haukur Hinriksson að skila sínu ágætlega. Þórður Birgisson skoraði síðan sitt annað mark þegar 33 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan orðin 4-0. ![]() ![]() Áhorfendur á bandi heimamanna mjög sáttir við leik sinna manna enda ekki annað hægt. Gestirnir fengu þó smá von rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, þegar heimamenn gerðu sig seka um að missa boltann mjög aftarlega á miðsvæðinu, og náðu gestirnir að nýta sér það mjög vel og skoraði Arnþór Hermannsson gott mark fyrir gestina eftir laglega fyrirgjöf frá hægri kanti. Staðan sem sagt 4-1 í hálfleik. Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti. Því Elfar Aðalsteinson skoraði strax á 50. mínútu og Völsungar komnir inn í leikinn. Elfar fékk boltann vel fyrir utan markteig og hamraði boltanum í hægra hornið á marki KF alveg út við stöng. Mjög gott skott hjá Elfari. ![]() Heimamenn virtust vakna við markið og Þórður var ekki búinn að segja sitt síðasta og fullkomnaði þrennuna með marki á 65. mínútu. Þórður hamraði boltan viðstöðulaust í mark horn gestanna. ![]() Tæpum 10 mínútum síðar kom mark leiksins, þegar Gabríel Reynisson þvældi að því er virtist 4 eða 5 varnarmenn heimamanna áður en hann lagði boltann fram hjá Kjartani í marki gestanna. Þetta mark var hreint með ólíkindum, og hefðu fótbolta snillingarnir í útlöndum verið mjög stoltir af tilþrifum sem þessum. Staðan því orðin 6-2 og leikurinn nánast búinn, eða hvað. Húsvíkingar eru ekki þekktir fyrir að gefast upp þó að á móti blási. Bjarki Baldvinsson sem hafði komið inná sem varamaður skoraði 3 ja mark gestanna þegar um 3 mínútur lifðu af venjulegum leiktíma, markið kom eftir hornspyrnu og féll boltinn fyrir Bjarka eftir barning í víteteig heimamanna, sem gerði vil í að klára færið. Gestirnir minnkuðu svo muninn ennfrekar í 6-4 tveim mínútum síðar þegar Kristján Vilhjálmsson, varð fyrir því óláni að skora í eigið mark eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá gestunum. Von kviknaði því aftur hjá gestunum því viðbótartíminn var 5 mínútur. Sú von slokknaði reyndar á 93. mínútu þegar Halldór Logi skoraði 7 mark heimamanna eftir hornspyrnu, markið var nokkuð líkt því sem Bjarki Baldvinsson, hafði skorað nokkru áður fyrir gestina, boltinn datt niður eftir barning í teig gestanna og kláraði hann færið vel. Kjartan vildi reyndar meina að brotið hafi verið á sér en Bjarni Hrannar dómari var ekki á sama máli. Niðurstaðan því 7-4 í ótrúlegum fótboltaleik á Ólafsfirði. Heimamenn hafa nú skorað 16 mörk í þremur síðustu heimaleikjum sínum. Sjá má þessa umfjöllun hér á fotbolti.net Skrifað af GuðnýÁg 05.08.2011 00:57Dalvík/Reynir-KF á Dalvíkurvelli 4. ágúst 2011
Það var eftirvænting í loftinu þegar flautað var til leiks í
nágrannaslag Dalvíkur/Reynis og KF á fimmtudag. Fiskidagurinn mikli
framundan og fjöldi manns í bænum. Að auki var frítt inn á völlinn í
boði Vodafone og því þétt setinn bekkurinn og brekkurnar á
Dalvíkurvelli. Leikurinn gat ekki byrjað betur fyrir heimamenn því að eftir aðeins 35 sekúndur hirti Bessi Víðisson boltann af varnarmanni KF og skoraði laglegt mark. ![]() ![]() Þetta kveikti í heimamönnum sem voru sprækari aðilinn framan af. Smátt og smátt unnu KF sig inn í leikinn og fengu hornspyrnu eftir 22 mínútur. Hornspyrnan var vel tekin upp í sterkan norðanvindinn og sveif í boga inn á markteig heimamanna þar sem Milos Glogovac kom boltanum í netið og staðan því orðin 1-1. ![]() ![]() Leikurinn var fremur jafn það sem eftir lifði hálfleiks, KF lék undan sterkum vindi en náði ekki að skapa sér mörg afgerandi færi en náðu á stundum pressu á vörn heimamanna. Það var hins vegar Dalvík/Reynir sem átti besta færið þegar Kristinn Þór Björnsson átti gott skot utan teigs undir lok hálfleiksins, markvörður KF, Halldór Ingvar Guðmundsson, varði vel en hélt ekki boltanum og mátti minnstu muna að sóknarmenn heimamanna kæmust í boltann en KF hreinsaði frá á síðustu stundu. ![]() ![]() Síðari hálfleikur var hins vegar að mestu eign heimamanna en þá léku þeir undan vindi og héldu uppi sterkri pressu á vörn KF sem gekk illa að koma boltanum frá. Dalvík/Reyni gekk þó illa að opna vörn heimamanna en Kristinn Þór skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu sem mörgum í stúkunni fannst vafasöm. Eftir hornpspyrnu endaði boltinn í stöng KF-marksins, Markús Jónasson fylgdi vel á eftir og héldu margir að hann hefði loksins skorað en þá fór boltinn í hliðarnetið. Markús skoraði síðan mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Oft þegar lið liggja svona í sókn þá geta skyndisóknir andstæðinga orðið skeinuhættar og á 80. mínútu áttu KF-menn eina slíka sem endaði með því að boltinn small í stöng heimamanna og fór þá um marga í stúkunni. ![]() ![]() Það var síðan á 88. mínútu sem að ísinn var brotinn. Eftir pressu á varnarmenn KF þá hrökk boltinn til varamannsins Hilmars Daníelssonar sem átti laglega stungusendingu á Bessa Víðisson sem kom honum snyrtilega fram hjá markverði KF. ![]() Bessi fékk síðan krampa í aftanvert lærið og þurfti að fara af velli undir áköfu lófaklappi heimamanna. Dómari leiksins bætti heilum 5 mínútum við vegna tafa og pressuðu KF þá ákaft en vörn heimamanna hélt og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar lokaflautið gall. Fimmti sigurleikur Dalvíkur/Reynis í röð og fiskidagsgleðinni formlega startað. 1-0 Bessi Víðisson 1-1 Milos Glogovac 2-1 Bessi Víðisson Klemenz Bjarki Gunnarsson skrifar frá Dalvík Dalvík/Reynir 2 - 1 KF Þessi umfjöllun er HÉR á Fotbolti.net Guðný Ágústsdóttir áhugaljósmyndari,tekur allar myndirnar á þessari síðu,smellið á myndirnar og farið beint inn í albúmið :-) Skrifað af GuðnýÁg
Flettingar í dag: 14 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 81 Gestir í gær: 35 Samtals flettingar: 408045 Samtals gestir: 124865 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:13:21 |
clockhere Eldra efni
Tenglar
Um mig Nafn: Guðný ÁgústsdóttirTölvupóstfang: gudnyag@hotmail.comAfmælisdagur: 9.desemberUm: Okkur sem að búum á mörkum hins byggilega heims!! |